Hverjir eru það sem fá sér einkaþjálfara og fara að éta sérstakt fæði?
Ég las ágætis pistil Vímusar um líkamsrækt og tilboð hans um að bjóða mönnum einkaþjálfun. En maður fer óneitanlega að velta fyrir sér hverjir það eru sem þjást að offitu og hverjir það séu sem kaupa þjónustu einkaþjálfara. Þeir sem eru of feitir eru oft á tíðum láglaunafólk sem hefur varla tíma til að borða hollt heldur hendir í sig ruslfæði á hlaupum. Þeir sem eru of feitir eru sem sagt vinnandi myrkranna á milli til að öngla saman fyrir nauðsynjum og helstu skuldum.
Þeir hins vegar sem eru í líkamsræktarstöðvum með einkaþjálfara eru þeir sem hafa það ógeðslega gott. Þeir sem hafa yfir 300.000 á mánuði og eru líklegast ekki með börn geta leyft sér þetta en við sem erum undir 200.000 á mánuði... og já, jafnvel undir 100.000 útborgað verðum að súpa seyðið af því að vera of feit. Mér finnst að í stað þess að fita fyrirmenn þessa lands eigi að nota peningana í að gefa pöplinum einkaþjálfun til að sporna við þeim offituvanda sem samfélagið hefur skapað sér. Þetta er í raun stjórnvöldum að kenna með því að samþykkja meðal annars þessi blessuðu skattalækkunarlög um daginn. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku sitja við sama keip. Hvar er andi jólanna þá? Helvítið hann Davíð Oddsson er búinn að lagfæra eftirlaunakjörin sín og nú er hann að koma í veg fyrir að það fari allt í hátekju skatt.
Sem sagt, offita er ríkisstjórninni að kenna, við sem höfum lítið milli handanna getum ekki losað okkur við aukakílóin þó við glöð vildum!
Nú er ég hættur að nöldra í bili og hef ákveðið að taka upp léttara hjal... alla vega þar til eftir áramót. SKÁL!
Þetta er hverju orði sannara. Það væri ólíkt skemmtilegra að sjá alla umfram fitu Íslendinga utan á vannærðum börnum jarðkringlunnar. Það væri varla erfitt að finna nokkur stykki.
Sú var tíðin að ríkt fólk sýndi auð sinn og velmegun með því að hlaupa í almennilegt spik. Hvað varð um þá góðu hefð?
Ég verð nú að segja það að ruslfæði og mikið fitandi matur er dýrari en hollari matur, og munið að hollur matur er ekki bara grænmeti og einhver viðbjóður.