— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Pistlingur - 10/12/05
NOTIÐ STRÆTÓ ASNARNIR YKKAR

Skoðið <a href="http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1112889" target="_blank">þetta</a>

Það er allt orðið gult hér! Vindurinn er sko ekkert að flýta sér og gróðurinn þarf sko ekki hreyfingu. Það þarf að koma okkur öllum í skilning um að það er mun gáfulegra að nota strætó í svona árferði og af hverju? Jú, það er þá bara einn stór bíll sem mengar í stað margra lítilla, það er minna um árekstra og þar af leiðir minna um bæði fjárhagslegt, líkamlegt og tilfinningalegt tjón. Notið strætó og hananú!

   (254 af 287)  
1/11/03 19:01

Rasspabbi

Nei, fólk hefur svo gaman af því að renna sér um snævi lagðar göturnar á sléttum sumardekkjum.

1/11/03 19:01

Ísis

Jahá...
En bara eitt; (þú verður að afsaka ef ég er svona vitlaus að skilja ekki) en, menga strætisvagnar ekki líka? Og jafnvel meira en bílar?

1/11/03 19:01

Tigra

Lagaðu þá fyrir mig strætókerfið.
Þannig að A) Ég þurfi ekki að labba óratíma í nsæta strætóskýli, B) Ég þurfi ekki að bíða í 20 mín ef ég missi af strætó, C) Ég þurfi ekki að leggja af stað 40 mín áður en ég á að vera mætt eitthvert sem tekur 10 mín að keyra.

1/11/03 19:01

Rasspabbi

jújú.. vissulega mengar strætó. Hinsvegar mengar strætó minna en 40 einkabílar. Oftast eru ekki nema einn, mesta lagi tveir, menn í hverjum bíl. Svo ef mín stórkostlega strærðfræði kunnátta (sem er afar slöpp) er rétt þá minnkar það bæði umferð og mengun að hafa 40 manns í strætó en 40 manns á einkabíl.
Formúlan sem ég notaði við þessa útreikninga er leyndarmál.

1/11/03 19:01

Júlía

Göngum bara í frostinu, það brakar svo skemmtilega í snjónum.

1/11/03 19:01

Ívar Sívertsen

Svo vil ég minna á að bensínbíll mengar tvisvar til þrisvar sinnum meira en dísilbíll þó svo að það sjáist meira aftan úr dísilbílunum. Það er nefnilega mun meira eitur í bensíninu.

1/11/03 19:01

hundinginn

1/11/03 19:01

hundinginn

1/11/03 19:01

hundinginn

1/11/03 19:01

Ívar Sívertsen

asni!

1/11/03 19:01

hundinginn

Taaratatata taratata taraaaa taraaaa...

3/12/04 22:00

Melkorkur

Strætóar rúla

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!