Hvað gera deiluaðilar nú?
Ég var að velta því fyrir mér í nótt hvað gæti falist í miðlunartillögu Ríkissáttasemjara. Einhver stakk upp á „Farið að vinna helvítis aumingjarnir ykkar, þið fáið hvort eð er ekkert meira“. Mér fannst þarna vegið full hart að kennurum. Það eru þarna ákveðnir menn sem virðast ekki þola hvorn annan og því ekki mikill samingsgrundvöllur fyrir hendi. Eiríkur kennari og svo þessi þarna með skeggið frá sveitarfélögunum komu fyrir all n0kkru í Kastljósið og ég er ekki frá því að það hafi hrímað all hressilega á milli þeirra. Umsjónarmaðurinn var kominn í kraftgalla og linsan á myndavélinni hélaði. Hvað getur miðlunartillaga Ása í Karphúsinu gert meira en að þvinga kennara til að fá minna en ráðgert var og þvinga sveitarfélögin til að fara enn meira á hausinn? Boltinn er, verður og hefur alltaf verið hjá ríkinu þar sem peningarnir til rekstrar grunnskóla koma þaðan. Við sem eigendur ríkisins eigum að rísa upp og láta í okkur heyra með það að skólarnir eigi að fá hærri fjárveitingar frá yfirvöldum! Það erum við sem höfum hag af því að börnin okkar fari í skóla. Höfum það hugfast að börnin okkar eru framtíðin og því ber okkur að uppfræða þau um lífsins gagn og nauðsynjar en ekki láta þau ganga sjálfala og reka sig á veggi! Ef Ási hefði ekki komið með þessa sáttatillögu þá hefði ástandið orðið líkt og maður sér í framtíðarmyndum frá ca. 1990 þar sem árið 2010 er allt orðið grátt og ógeðslegt eftir kjarnorkustyrjöld og glæpamenn réðu landinu. Reyndar eru það nú óttalegir glæpamenn sem ráða hér ríkjum en allt annars konar en þeir sem eru í bíómyndunum. Beitum kennara og sveitarfélög þrýstingi og krefjumst þess að þeir samþykki miðlunartillöguna. Við verðum nefnilega að hafa það hugfast að það þurfa báðir aðilar að samþykkja tillöguna til að hún verði að veruleika.
Syngist við alþekkt lag um Stjörnusambandsstöðvar: ♪♪♪Hvenær munu, hér á Íslandi, koma kennsluvélmenni♪♪♪
Ég er alveg sammála þér, Ívar Sívertsen. Láttu svo útúrsnúninga smælingja sem vind um eyru þjóta.