— GESTAPÓ —
Rasspabbi
Fastagestur.
Dagbók - 31/10/05
Ómeðvituð móðgun

Vona að ég móðgi engan með þessarri dagbókarfærslu - ég ætti kannski bara að sleppa henni.

Daginn.

Í falsmiðli www.mbl.is kemur fram þessi frétt http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1227497

Nú er það orðið svo að ekki þykir fært að setja upp einhver klessuverk af ótta við það að styggja einhverja trúbrjálaða bavíana sem lita allt sitt trúarsamfélag ljótum lit.

Svei.

Að fólki skuli vera gert nær ófært um að tjá hug sinn og skoðanir af ótta við það að einhver fábjáninn móðgist og hafi uppi líflátshótanir í framhaldinu. Ofangreind falsfrétt er ekki eina tilvikið heldur var uppfærsla á óperu eftir Mozart lögð niður þar sem óttast var að þetta mörghundruð ára gamla verk myndi móðga einhverja frekjudólga.

Er það sanngjarnt að þeir sem á vesturlöndum búa þurfi að gæta sín í hvívetna varðandi það sem þeir láta út úr munni sínum, því hér eiga allir að vera svo sanngjarnir og égelskaallaskilyrðislaust?
Svo ef farið er suður í sanda að þá er einskis krafist, þar sem þar er jú menningin svona og hinsegin og þá er það barasta allt í lagi.

Forstöðufólk þessa listasafns hefur kannski farið fram úr sér í því að vilja ekki móðga trúarsamfélag en hæ... má ekki gera ráð fyrir því að þeir sem aðhyllast þessa trú séu með rökhugsun rétt eins og flestir aðrir?

Þetta stendur svolítið í mér. Má ekki gagnrýna eða ræða um það sem er öðruvísi, án þess að óttast morðhótanir og múgæsing?

Ég rétt vona að fólk hér á landi fari nú ekki að lúffa fyrir einhverjum svona yfirgangi, þá yrði nú fokið í flest öll skjól, málfrelsið sem fólki er nú svo annt um.

Góðar stundir.

   (4 af 17)  
31/10/05 07:01

Offari

Ég lúffa því ég vill engann særa, Ef ég átta mig á því að ég hef sært einhvern með orðum eða athöfnum hætti ég leika þann leik þót svo mér hafi fundist það vera saklaust grín eigum við að virða tilfinningar annara.

31/10/05 07:01

Vímus

Það væri ljóti andskotinn ef maður tæki upp á því að raula Gamla Nóa í návist.... (ja það er best að segja sem minnst)... einhverra sem ekki drekka áfengi eins og Nói. Stendur ekki í textanum Þótt hann drykki?

31/10/05 07:01

Rasspabbi

Að hugsa sér ef maður gerðist svo ósvífinn...

31/10/05 07:01

Úlfamaðurinn

Ég er trúbrjálaður úlfur en ekki bavíani, en bíðið eftir næsta innleggi því að þá verður það páfinn sjálfur sem fær næstu svífirðingu, sjálfur Ratziger páfi í Róm.

31/10/05 07:01

Rasspabbi

Jemundur. Ég átti ekki við að allir sem aðhylltust þessa trú, og í raun hvaða trú sem er, væru bavíanar heldur þeir sem færu fram með ofstæki og yfirgangi væru bavíanar.

Skál.

31/10/05 07:01

Úlfamaðurinn

Þannig að þú ert sem sagt að halda því fram að lifnaðarhættir bavíana séu byggðir áofstæki og yfirgangi. Hm. Áhugavert. En hvað með fiðrildin? Hefurðu ekki heyrt um ástarmálin hjá karlkyns fiðrildum? Þau verða merkilegt innlegg sem ég kem fyrir hér eftir nokkra daga en þetta er síðasti þráður minn í dag.

31/10/05 07:01

Offari

Ég efast um að fiðrildin móðgist þótt þú segir okku svæsnar klámsögur af þeim.

31/10/05 07:01

Þarfagreinir

Mér finnst þetta æðislegt. Það er langt síðan að listin hætti að vera hneykslanleg, en núna er hún allt í einu orðin það aftur.

31/10/05 07:01

Siggi

Þarna eru hryðjuverkin farin að virka. Við eigum að gera einsog við gyðingana yfirtaka plánetu og koma þeim þangað.

31/10/05 07:01

Lopi

Lifi hin fallega múhameðstrú! Niður með vestræna úrkynkjun!

31/10/05 07:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Heir heir lopi Þettað guðlausa lið sem alltaf er að ergja rétttrúaða getur bara stungið hræsninni upp í verðbólguna á sér.

31/10/05 08:00

Vímus

Lopi hefur þú kynnt þér Múhameðstrú?
Ég hef aldrei lesið staf í Kóraninum en ég hef heyrt muslima segja að hann boði kærleik og frið, enga kvenfyrirlitningu og allra síst ofbeldi. Það vil oft verða að þeir sem eru ofsatrúmenn snúi þessu öllu við. Hugsið ykkur óþokkana á Omega með her og einræðisvald.

31/10/05 08:01

Hexia de Trix

Heyrheyr Vímus! Það er ekki Islam sem er slæmt, heldur bókstafstrúarmenn Islam. Því miður er það svo að enn eina ferðina ná örfáir að skemma fyrir fjöldanum.

Þetta á auðvitað við um alla bókstafstrú.

31/10/05 08:01

Hexia de Trix

Annars er ég líka sammála félagsritinu. Við megum ekki láta svona endaulaust undan. Eitt er kannski að birta mynd af spámanninum í fjölmiðli sem særir trúarsannfæringu fólks, annað að taka niður listaverk á lokaðri sýningu af því hún sýnir berar konur.
Einhvers staðar þurfum við að draga mörkin. Við megum ekki láta vaða endalaust yfir okkur af nokkrum fávitum - og þá meina ég hryðjuverkamenn en ekki alla múhameðstrúarmenn. Það má alls ekki rugla þessum tveim hugtökum saman.

31/10/05 08:02

Upprifinn

Allavega ætti að vera bannað að taka niður myndir af berum konum.

31/10/05 09:00

dordingull

Trúarbrögð eru böl mannkyns.
Hengingarólin er kyrkir í fæðingu allar tilraunir þess til frekari þroska.
Hversu oft þarf ég að segja ykkur vanþroskuðu afturfótafiðrildinum frá augljóstri staðreynd sem allar lífverur alheims eru meðvitaðar um nema mannskepnan?

31/10/05 09:01

Jóakim Aðalönd

Það, að taka niður myndir af allsberu kvenfólki, er hryðjuverk. Skál!

31/10/05 09:01

Jóakim Aðalönd

...og já, niður með trúarbrögð!

31/10/05 10:01

Lopi

Niður með peningjahyggjutrúarbrögðin.

31/10/05 10:01

Jóakim Aðalönd

Sumsé Kaþólskuna?

31/10/05 10:01

Offari

Missti ég af trúarbragðardeilu?

Guð er til. og hana nú, haldið svo áfram að rífast.

Rasspabbi:
  • Fæðing hér: 31/1/04 14:34
  • Síðast á ferli: 12/11/15 12:13
  • Innlegg: 239
Eðli:
Rassfaðirinn er hinn vænsti karl og er ekkert klúr.
Fræðasvið:
Einkar ófróður um það sem fróðlegt þykir en þeim mun fróðari um ófróðlega hluti.Sem sagt, ófróður fræðamaður.
Æviágrip:
Ævin hófst líkt og hjá hverjum örðum ómerkilegum Íslending, með öskrum og látum.Skrölt í gegnum skóla af mis miklum áhuga og angur frá eldri nemendum. Ekki má þó kalla Rasspabba tossa eða letningja því hann er þokkalegur þegar hann vill og nennirNú til dags heldur Rasspabbi sig gjarnan í nánd við lítinn flugvöll á einum af mörgum útnárum Íslands.