Þetta grábölvaða heimavarnarlið
Stjörnudagbók 041203
Núna hefur þetta unnið sig úr morðtilraunum og yfir í stríð! já! Hér í Arnarhreiðrinu í Þýskalandi hef ég vígbúist af fullum krafti meðan Vlad reynir af öllum mætti að bombardera mig. Bölvaður hlandsokkurinn veit greinilega ekki að hann er að bombardera Færeyska sendiráðið... nema hann sé bara að gera það í leiðinni.
En hvað um það, hann kemst seint í gegnum loftvarnir mínar sem samanstanda af erfðabreyttum geirfuglum, innfluttum frá Vestmannaeyjum. hahahahahahaha!