Þá er ég loksins kominn til fósturjarðarinnar eftir nokkra dvöl í Tíbet hjá óðum daóískum munki sem kenndi mér fínni afbrigði drekavarnarinnar fyrir langstaf. Hann skilaði sínu og prófaði ég tæknina á leynilegri kínverskri herstöð í nágrenninu. Ég eyddi að auki nokkrum dögum í Wudan við að laga tæknina að katanasverðinu og tókst það ágætlega, amk. miðað við mannfall kínverska hersins sem gat ómögulega fyrirgefið mér að hafa eyðilagt öll ummerki um kóbaltandjónunarhreyflana sem voru í þróun í gömlu herstöðinni.
Ég tók nokkrar myndir í ferðinni en mér sýnist ég eiga erfitt verk fyrir höndum að fótósjoppa burt alla afhoggnu líkamspartana og blóðið af fallegu klaustrunum og tígullegu landslagi Wudan.
Komstu með minjagripi? Ég held að haus kínversks hermanns myndi sóma sér vel á hillunni í stofunni, ef þú átt slíkt til.
Velkominn til baka. Nú þegar þú ert kominn aftur ættum við að geta farið að undirbúa nýtt stríð. Það er svolítið langt síðan að við fórum í almennilegt svoleiðis.
Tekur stutta en snarpa kötu með sverðinu sem endar í heiðurskveðju, til að fagna endurkomu Konungsins.
Gott að fá þig heilan heim. En ert þú ekki svangur?
Kínverjar eru einhæf fæða.
Takk fyrir. Ungfrú Júlía er ekkert fyrir námi hjá sturluðum munkum sem borða bara köld hrísgrjón og rottublóð. Hún ákvað að eyða tímanum í París og láta tískuhönnuðaslekt borgarinnar galdra fram sitt fínasta fyrir sig.
Vertu velkominn aftur. Ég vona að dvölin hafi verið ánægjuleg og að summurnar sem spillingaráðuneytið þurfti að reiða fram hafi komið í góðar þarfir.
Það var annars fín grein um þig hérna um daginn í DV. "Íslenskur viðskiptafræðingur meikar það saman með lífvörðum Danadrotnningar".
Velkominn til baka og skál ! Það hefur vantað eitthvað hjer síðustu vikur. Það er oss ljettir að yður var eigi rænt af óvinum ríkisins (nema slíkt hafi gerst og leitt til gjöreyðingar þeirra óvina er það reyndu).
Velkominn heim nú þegar ég er farinn í jóðlaralandið og hef ekki enn fundið einn einasta jóðlandi andskota.
Hinsvegar reykja hér allir eins og strompar og það er alveg sama hvar maður er, þar er reykt. [Blótar herfilega og reynir að anda að sér ferskara lofti]
Þakka ykkur fyrir, fyrir utan Vestfirðing sem verður líflátinn fyrir að gefa í skyn að ég sé viðskiptafræðingur, og það íslenskur í þokkabót. Ófyrirgefanlegt.
Vertu velkominn heim Herra minn.
[Hneigir sig og ber fram köku sem lítur út einsog sverð]
Heill og sæll kóngur klár, berðu kveðju okkar til hinnar fögru Júlíu. Við bíðum vongóð eftir félagsriti af bestu sort.