Ég var að koma út af spítalaum í þessum töluðu orðum.
Tjaldið er að mestu í lagi en það er nú samt best að taka almennilega til hérna. Tjaldið verður víggirt fyrir næstu helgi.
AAAAAAAAAAA þið getið ekki ýmindað ykkur hvað var gert við svefnpokan minn. Þessa skal hefnt Selfoss verður lagður í eyði og salti stráð í rústirnar svo ekkert vaxi þar framar.
Hvernig er það, áttu enga vini? Hvernig stendur á því að þú ert einn þarna? Og ef þú ert ekki einn, hversvegna hjálpuðu vinir þínir þér ekki? Og ef þeir hjálpuðu þér, hversu aumir eruð þið eiginlega?
Já en karþagó er löngu kominn í rúst og eyði. Vinir mínr ætla ekki að mæta í röðina fyrr en það er 2 dagar þar til að miðasalan opnar.