Ríkið hefur ekki lengur efni á að borga mönnum fyrir að eyða meindýrum. Þvert á móti hefur verið lagt á gjald í staðinn:
Fyrir hvert drepið dýr af eftirfarandi tegund ber þeim er skpnuna drap að greiða tilsvarandi upphæð í ríkissjóð:
- Fluga drepin: 100 kr. (heilt geitungabú: 36.000 kr.)
- Mús drepin: 500 kr.
- Rotta drepin: 2.500 kr.
- Mávur drepinn: 4.500 kr.
- Tittlingar drepnir: 2.000 kr. (parið)
- Lómur barinn: 1.400 kr. (pr. skipti)
- Gæs gripin: 2.500 kr. (pr. skipti)
- Önd, staðið á /höfð í hálsi: 4000 kr. (pr. skipti)
- Minkur drepinn: 15.000 kr.
- Refur drepinn: 65.000 kr.
- Lús gereytt úr höfði manns: 48.500 kr.
- Skordýrafjöldamorð við garðúðun: 23.500 kr.
- Veggjatítlu- og/eða silfurskottuútrýming úr heilu húsi: 97.000 kr.
- Njálgur drepinn: 42.000 (pr. endaþarm)
- Selur drepinn: 190.000 kr.
- Hvalur drepinn: 1.000.000 kr.
- Ísbjörn drepinn: frítt
Eins best að þetta gjald var ekki komið á eitt skiptið sem ég ók milli Akureyrar og Reykjavíkur og bíllinn var allur útslettur af dauðum flugum.
Það vantar gjaldið fyrir íslenska aðalloðfílinn og morðfje. Er það kannski óendanlega hátt ?
Hvað með þá, sem brynna músum? Fá þeir greitt fyrir eða ber þeim sjálfum að greiða fyrir þann gjörning?
Vladimir: Já, gjaldið fyrir það er 8 á hliðinni.
Regína: Nei, það er lögbrot.
Golíat: Rjúpan er ekki meindýr.
Herbjörn: Það kostar bara 50kall að brynna músum. Sama og fyrir að gera flugu mein.
Einstein: Nei, það er magnafsláttur.
Að því gefnu að listinn sé tæmandi lít ég svo á að heimskautafroskar séu ekki meindýr. Enda greind dýr.
Drepur tittlinga, ber lóminn og grípur gæsina.
Annars, flottur innleggjafjöldi hjá þér hlewagastiR
Er gjald fyrir að berja dýr, sbr. lóminn, hvað þá að grípa fugla eins og gæsir?
Einstein: Jújú, þetta má allt lesa í innlegginu.
Huxi: Það hefur af vangá láðst að setja gjald fyrir Vatnselgi þannig að þarna getur þú örugglega nýtt þér gat í reglugerðinni og hafið stórfellt Vatnslegjadráp alveg ókeypis.
Álfelgur er hins vegar alfriðuð. Það má ekki einu sinni dissa hana því að þá verð ég bandbrjálaður og læt Regínu lemja þig.
Það er auðvitað harðbannað og ósiðlegt með öllu að berja önnur dýr. En það er ókeypis.
Ég sé ekkert þarna um að drekka bjóra, er von til að sú iðja verði kostnaðarminni en áður?
Þarfagreinir: Hey, kommon maður, við erum Íslendingar og við drepum ísbirni hvar sem til þeyrra næst. Pyntum þá helst fyrst. Okkur finnst það ógeðslega gaman og það er alveg ókeypis. Komdu, sjáðu og sannfærstu.
Manni verður bara hreinlega ekki um sel. Ekki svo að skilja að maður hyggi á seladráp, enda hefur enginn efni á slíku.
En hvað með selbita, eða að bíta sel ?
Nú hefur slíkt ævinlega verið gefins, sbr. að „gefa e-m selbita“... & stendur þá væntanlega utan gjaldskrárinnar, eða hvað ?
Hvað með dráp á biskupum, drottningum og riddurum ? Telst þar um dýr að ræða ?
stjórnmálamaður drepinn; 16 ára fangelsi , sérstaklega ef embættistíð hans var nógu spillt
Elízabet II Englandsdrottning drepin; óvíst um sparnað eða ágróða eða annan ávinning.
Riddari drepinn - hvaða riddari?
Mat fyrir 1000 krónum stolið úr verslun = frelsissvipting og geðveikisstimpill.