Helvítis mafían
Ég bið þá sem voru með leiðindi við Billa bilaða vin minn að senda honum afsökunarbeiðni.
Billi! farðu að láta sjá þig hérna á Lútnum, hann er fátækari án þín.
Hvah... ef þetta hefur verið eitthvað mafíutengt, þá kemur hann aftur fljótlega...
Ég hef tekið eftir fjarveru Billa og sakna hans. Sé téð fjarvera að einhverju leyti til komin vegna mafíudrama, þá biðst ég innilegrar afsökunar á þætti mínum í því. Í öllu falli skora ég á Billa að láta sjá sig aftur!
Ég veit sussum ekkert af hverju Billi er leiður..., held þó að það tengist mafíu skafíu.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer söknum líka Billa [Kýs Billa fyrir grunsamlega fjarveru].
Hann er núna mættur þannig að hugsanlega hefur sú fjölgun orðabelgja sem síðasti orðabelgur hafði í vör með sjer virkað [Ljómar upp].
burdilunk er mafíósi.
Ef þú, burdilunk, sérð þennan póst og ert enn á lífi, máttu afrita hann og birta, og þá vinnur mafían.
Ef þú ert dauður og birtir þennan póst eða gefur í skyn tilvist hans, vinna þorpsbúar. Ef þú ert mafíósi en heitir ekki burdilunk gerirðu ekki annað en að koma upp um þig og félaga þinn ef þú birtir póstinn eða gefur hann í skyn á nokkurn hátt.
Skemmtum okkur.
Eins og segir í upphafsinnlegginu, þetta er siðlaus leikur. Þó þátttakendum sé óheimlt að tala samn í einkaskilaboðum þá er þeim ekki bannað að tala saman á annan hátt, til dæmis hér.
3 verndarar? Ég hafi bara fundið upplýsingar um 2. Jæja. Það væri nú gott ef einhver rækist inn hjá mér, svo maður gæti komið út úr skápnum og klárað leikinn.
[dæsir]