Mig langar að koma þessu sérstaklega að í tilefni dagsins.
Gleðileg jól elsku rúsínurassgötin mín! Verið svo stillt og prúð um hátíðarnar, eins þó þið fáið ekki möndlugjöfina eða Nonni bróðir fái flottari gjafir.
Sjáumst.
Golíat hið friðelskandi jólabarn.
Nonni fær engar gjafir fremur venju, hann er hinn illi tvíburabróðir minn og læstur inni á háaloftinu. Muhahahah...
[Tekur sig saman í andlitinu og felur vítennurnar]
Gleðileg jól.
Ég fékk ekki möndlugjöfina. [Kæfir niður löngunina til að sparka í húsgögnin því það eru nú einu sinni jólin]
Gleðileg jól!
Gleðileg jól, sleppi bara möndlugraut og -gjöf. Þá er það frá.
[Ljómar upp]
.... Reyndar var það alltaf frá, það hefur aldrei verið neitt möndluvesen hjá mér.
Gleðilega hátíð, gamle ven. Ég skal vera stilltur og prúður, þó ekki væri nema fyrir þín orð.