— GESTAPÓ —
Golíat
Heiðursgestur.
Gagnrýni - 31/10/03
Aldrei, aldrei fyrr hef ég verið kallaður tossi...

Ótrúlegur dónaskapur þessara ungu manna sem kalla sig ritstjórn eftir að þeir komu úr sumarfríinu.

Hvurslags sleggjudómar og dónaskapur er þetta. Tossi, tossi?
Hvað meiniði? Er nærveru þeirra okkar sem ekki hafa skrifað yfir 10 pistlinga í félagsritin ekki lengur óskað eða vantaði ritstjórnina bara einhvern skotspæni?
Ég held að upp til hópa séum við ekkert verri Bagglýtingar en margir hinna.
Sem sagt ég er sár og vænti afsökunarbeiðni.
Er síðan ekki komið nóg af endalausum breytingum, þe á lútnum?

   (28 af 30)  
31/10/03 04:01

Jóakim Aðalönd

Amen!

31/10/03 04:01

Limbri

Jah, þó svo ég sé sjálfur óttalegur tossi finnst mér óhæft að það sé borið á borð fyrir gesti og gangandi. Nær hefði verið að gefa mönnum eins og mér nafngiftina "Ritstíflaður" eða eitthvað áþekkt.

31/10/03 04:01

Vamban

Ho, ho ho!

31/10/03 04:01

Skabbi skrumari

Þið eruð tossar og sættið ykkur við það..hehe

31/10/03 04:01

Golíat

Það er nú ekkert stórmál að bæta úr þessum skorti á félagsritum til að komast úr tossabekknum, en er það það sem vantar hér, meira innihaldslaust raus...

Golíat:
  • Fæðing hér: 13/10/03 10:42
  • Síðast á ferli: 4/2/19 13:04
  • Innlegg: 7464
Eðli:
Haldinn óþolandi samkeppnisanda.
Fræðasvið:
Garðvísindi, mótauppsláttur og almennir hleypidómar.
Æviágrip:
Prestssonur frá Stökustað í Sinnisveit. Byrjað þar að sitja fé og spinna ull 6 vetra. Fór til sjós 12 vetra að loknu 3 mánaða ströngum farskóla. Er þar enn, enda í góðu plássi hjá Birni "tryllta" Böðvarssyni á teinæringnum Hafgúunni frá Dritvík.