Gagnrýni um Fylkið - Endurhlaðið.
Komst að því að þessi mynd endar í þannig að fyrsta myndin getur verið framhald af henni. Þarna kemur í raun trílógía sem fer í hringi þannig að þegar að þú átt allar myndirnar og búinn að horfa á númer þrjú þá horfiru á númer fjögur sem er í raun númer eitt, síðan á númer fimm sem er í raun númer 2 og svo koll af kolli þangað til að þú ert dauður eða rafmagnið fer af.
Annars held ég að það sé of seint fyrir mig að segja fólki að fara ekki á þessa mynd og þó svo að það sé ekki of seint þá mun fólk samt fara á hana vegna þess að það er búið að sjá hina tvær og þarf að fá endalok trílógíunnar í æð. Sem það reyndar fær ekki og ég er búinn að reyna að segja hérna að ofan. En hlustar fólk á mig NEEEIII allskostar ekki.