— GESTAPÓ —
Frelsishetjan
Fastagestur og  skriffinnur.
Dagbók - 1/11/03
Ástandið!

Hér kemur stutt saga um hvernig það er að vera "englabossarossi".

Nú er svo komið fyrir mér að allt mitt hatur og mín illgirni í garð annara er bæld niður með því að vera englabossi. Þið snúllur skuluð ekki halda það að þið getið komist upp með einhverjar ærumeiðingar þá mun ég knúsa ykkur. Ohh jeminn ég get ekki blótað eða talað ljótt. Þetta er leiðinlegt ástand og ber Enter snúlla ábyrgð á þessu.

Bíðið bara ég mun hefna mín á ykkur og Enter snúlla er þar fremstur í flokki. Nú þarf ég bara að uppgötva mín nýju vopn og þá mun ég geta hefnt mín á öllum dúllunum sem ráðast að mér.

Ég elska ykkur öll! Þið eruð frábær og megi ástin flæða yfir allt og alla.

Njótið þess meðan þið getið!

[atriði]Snúllast dúllulega í burtu. [/atriði]

   (4 af 50)  
1/11/03 18:01

Ívar Sívertsen

Æ hvað þú ert dædur og dædur... þú ert að komast í flokk með Bauvinu

1/11/03 18:01

Frelsishetjan

Ekki segja þetta...

1/11/03 18:01

Tigra

Þú eeeeert svo mikið krúttípútt *klípur í kinnar*

1/11/03 18:01

Von Strandir

Mér fannst bauv alltaf sætastur, mér finnst þú hinsvegar vera miklu meira krútt núna.

1/11/03 18:01

Tinni

Ég ítreka orð mín að þú ert ull í sauðagæru.

1/11/03 18:01

Júlía

Loksins sýnirðu þitt rétta andlit á Lútnum, engillinn minn!

1/11/03 18:01

Hóras

Sqweek!

1/11/03 18:01

Omegaone

Við upphaf lesturs þessa rits var mér hugsað: Battnandi mönnum er best að lifa. En svo sá ég eað þetta er aðeins fyrsta skrefið í rétta átt hjá FRELSISHETJUNI. En það gertur enn brugðið til beggja átta.

1/11/03 18:01

Nykur

Það sem kemur mér mest á óvart við þetta allt saman, er að Frelli skuli spila á hljóðfæri!?

1/11/03 18:01

Frelsishetjan

Það er verið að leggja mig í einelti!

1/11/03 18:01

Ísis

Eitt sem ég var að spá samt.
Hóras er alltaf að svívirða engla...þetta væri gaman að sjá!
- Hamstur að svívirða engil!

1/11/03 18:01

Rýtinga Ræningjadóttir

*Bráðnar af hræðslu*

1/11/03 18:02

Jóakim Aðalönd

*Verður ringlaður af allri þessari vitleysu í Frella*

1/11/03 18:02

bauv

*Múhahahaa*

Frelsishetjan:
  • Fæðing hér: 3/10/03 17:51
  • Síðast á ferli: 4/1/08 18:58
  • Innlegg: 151
Eðli:
Drottnari allra vídda og sérlegur sendimaður Baggalútíu þangað.
Fræðasvið:
Svall, svall og aftur svall.
Æviágrip:
Líf mitt var frekar innantómt þangað til að deyjandi vinur minn gaf mér hringinn sinn eftir það jókst matarlyst mín á bæjarfólkinu og börnum. Var síðar vísað úr bænum og fór til fjalla. Lagði þar orka og fisk mér til munns. Kynntist þjófi og hef verið á eftir því sem hann stal frá mér síðan. Náði Hringnum eina aftur og til að gera langa sögu stutta, gleypti ég hann óvart og öðlaðist alheimskrafta.