Útsýn og víðsýni teljast ótvíræðir kostir.
Nú er það svo að þegar ég skráði mig inn hérna í dag þá reyndist ég tvíhöfða. Mér líður eins og opinberum starfsmanni það er allt í tvíriti. Á þessu eru þeir kostir að mér gengur helmingi betur að koma auga á stafsetningavillur. En helmingi verr að ákveða hvað ég hef að segja, - það er einnig einkenni á opinberum starfsmanni. Ég ætla ekki að fara yfir það nákvæmlega hvernig mér gékk að innbyrða morgunmatinn í morgun, -en til þess að gera langa sögu stutta þá var ég helmingi sneggri en venjulega. (það er reyndar ekki einkenni á opinberum starfsmanni.) Betra væri að vera þríhöfða, því þá væri hægt að taka lýðræðislega ákvöruðun um hvernig bæri að snúa sér í þessari stöðu.