— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Urmull Ergis
Óbreyttur gestur með  ritstíflu.
Dagbók - 1/11/10
Tvíhöfða.

Útsýn og víðsýni teljast ótvíræðir kostir.

Nú er það svo að þegar ég skráði mig inn hérna í dag þá reyndist ég tvíhöfða. Mér líður eins og opinberum starfsmanni það er allt í tvíriti. Á þessu eru þeir kostir að mér gengur helmingi betur að koma auga á stafsetningavillur. En helmingi verr að ákveða hvað ég hef að segja, - það er einnig einkenni á opinberum starfsmanni. Ég ætla ekki að fara yfir það nákvæmlega hvernig mér gékk að innbyrða morgunmatinn í morgun, -en til þess að gera langa sögu stutta þá var ég helmingi sneggri en venjulega. (það er reyndar ekki einkenni á opinberum starfsmanni.) Betra væri að vera þríhöfða, því þá væri hægt að taka lýðræðislega ákvöruðun um hvernig bæri að snúa sér í þessari stöðu.

   (1 af 1)  
1/11/10 07:01

Billi bilaði

Ber þá að ávarpa þig í fleirtölu? <Klórar súg í höfuðpaurnum>

1/11/10 07:01

Billi bilaði

Hinn þú er nú fallegri!

1/11/10 01:01

Goggurinn

Þetta er nú aldeilis sniðugt!

Urmull Ergis:
  • Fæðing hér: 16/11/10 17:26
  • Síðast á ferli: 31/10/11 21:01
  • Innlegg: 52
Eðli:
Íslenskur flökkuhrímþurs, með aðsetur í Svíaríki. Kominn af Hjör Hálfssyni kóngi frá Noregi. Búsettur á Íslandi fram á miðjan aldur, hef alið manninn á öllum norðurlöndum nema Finnlandi.
Fræðasvið:
Umhverfis og handverks sinnaður.