Æjj, ég veit ekki.
Í gær notaði ég orðið fleka, sem vakti mikla lukku. Mun meiri lukku en ég átti von á. Ég ákvað að fletta því upp í samheitaorðabók á netinu til að þið getið fengið nokkrar útgáfur af útskýringu orðsins.Glottir eins og fífl
Bið viðkvæma um að snúa við núna..
Fremja holdlegan verknað með <honum, henni> so
Gilja <konuna> so
Leika ástarleiki við <hann, hana> so
Fá sér á snípinn so
Fremja holdlegan verknað so
og margt margt meira.
Í gær fórum ég og Litla Laufblaðið í sund og við vorum vissar um það að besta útskýringin á því að fleka væri að taka svona litla korkfleka og henda í fólk.
Hvað finnst ykkur ? Finnst ykkut gaman að fleka? Og þá í hvaða merkingu ?
Já, í samheitamerkingunni sem að ofan er gefin nema (sjá eftirmál). En sumir vilja ljá orðinu merkinguna að fífla (sem nokkrir kalla samnefni giljunar) og þá verð ég að svara neitandi.
Ég lofa að fleka þig næst þegar við skottumst í sund Vilta mín...og alla sem þora að koma með okkur!
Að gilja þykir mér þýða það sama og að klofa í rauninni. Þar sem leiðin inn að kuntunni lítur út einsog gil (í mjög grófri meiningu náttúrulega nema að maðurinn sem fann það upp til að byrja með hafi farið á holdsveikisjúkling).
Giljagaur, hversu klámfengið er það jólasveins nafn? Og í tvíræðri merkingu má þar halda að rassgat gæti líkst einhverju gili og þessvegna karlmannsrassgat líka - þá gæti Giljagaur allt eins verið hommi.
...þetter svona...
Þá gætum við búið til jólasveininn.. Flekafíkil. Hann var kynlífssjúklingur. Hann daðraði við allar heimasætur þorpsins og stal meydómi þeirra.
Ekki gleyma Brjóstasleiki í þessu tilviki. Annars eru jólin búin. Kemur Þorri ekki með neina skemmtun utan punga og blóðfitu? <hugsar um fryst brennivín>
Upplífgandi lesning í meiralagi, svona í morgunsárið.
-
Óflekaður enn ég var
áðuren ég sá það,
dónaritið dásemdar.
Dýrðlegt var að fá það!
Gilja, fleka, gera hitt;
girnd nú holdið trylli.
Flekað er nú mannorð mitt
af -meyjarórum Villi-
Eyrnasleikir, rassaþefir, klofarúnkur, Skreppur seiðkarl, mannaraétir, uppriðinn, kúkmakinn, brundslettir, hökupúngur og drulluflottur, allt saman jólasveinanöfn sem gleymdust við uppfærslu íslenskrar orðabókar árið 974.
Og uppáhalds kvikmynd Texi's Everto er Bakbrjótsfjall. Þar situr hann, á 'bak'teríunni og drekkur sitt kaffi og étur með því baunir og er hann rekur við heyrist einsog í feitri belju <ffffffúúúúúúúhhhhh klapklapklapklapklap>.