— GESTAPÓ —
Huxi
Heiðursgestur.
Pistlingur - 3/11/08
Blessuð jólin

Ég ætla að brjóta eina af reglum Baggalúts og rita hér félaxrit sem ekki er innihaldsríkt.

Jólakveðja til ykkar allra. Líka þeirra sem ég hef kallað fávita og verið að rífast við. Þið eruð öll, alls góð makleg og ættuð að fá nammi í skóinn frá öllum jóla- ramadan- sólrisu- og hanukkasveinum þessa heims og annars. (Skelfing sem maður verður eitthvað væminn á jóladagsmorgni).
Svo í tilefni af hækkandi sól vil ég nota þetta tækifæri til að hvetja alla til að vera duglegri að hittast hér á Gerstapó, því það er engin önnur netgátt sem kemst í hálfkvisti við Baggalút. Víðfeðmari, hugmyndaríkari og fjölbreyttari staður finnst ekki á alnetinu og það er óskiljanlegt að góðir og gegnir Bagglýtingar skuli hafa yfirgefið oss fyrir helv... hana Smettisskruddu.
Við ykkur segi ég: Komið aftur heim. Ykkar er saknað.
GLEÐILEG JÓL.

   (9 af 35)  
3/11/08 01:01

Herbjörn Hafralóns

Gleðileg jól!

3/11/08 01:01

Billi bilaði

Gleðilegar daglengingar.

3/11/08 01:01

Garbo

Tek undir það. Gleðileg jól.

3/11/08 01:01

núrgis

Gleðó jóló. Pússpúss og mússmúss, (Ég er víst 14 ára, skv. Villimey eða Regínu,)

3/11/08 01:02

Anna Panna

Gleðileg jól Huxi, ég vona að Færeyingurinn hafi fengið rúsínur út í hafragrautinn í tilefni hátíðarinnar...

3/11/08 01:02

Einn gamall en nettur

Það er búið að fela fyrir mér tvær sexur!!

3/11/08 01:02

Gleðileg jól kæru vinir.

Persónulega finnst mér að Gestapó og Facebook séu andstæður sem ættu að útiloka hvort annað. Hverjum ætti því að gera skylt að velja á milli. Þeir sem velja síð(a)ri kostinn, mega dúsa í dýflissum þeirrar skruddu.

3/11/08 02:00

Kiddi Finni

Gleðileg jól. Hyvää joulua.

3/11/08 02:01

Upprifinn

já megi jólin og allt tímabilið sem fylgir nú á eftir vera þér og þínum gæfuríkt og gott.

3/11/08 06:01

krossgata

Hvað meinarðu með „ekki innihaldsríkt“? Er þetta - „hér á Gerstapó, því það er engin önnur netgátt sem kemst í hálfkvisti við Baggalút. Víðfeðmari, hugmyndaríkari og fjölbreyttari staður finnst ekki á alnetinu“ - ekki að springa af innihaldi og svoleiðis tanduhreinum sannleika?

3/11/08 06:01

Huxi

Jú, sorrý Krossa. Ég ætlaði bara að skrifa innihaldsríra jólakveðju en missti mig svo óvart í heilaga vandlætingu yfir bévuðu Smettinu

1/12/09 06:00

Z. Natan Ó. Jónatanz

Gleðilega rest & skál !

31/10/09 05:01

Sannleikurinn

Bölvað andskotans helvítis kjaftæði!!

Huxi:
  • Fæðing hér: 20/9/07 20:16
  • Síðast á ferli: 19/5/20 12:12
  • Innlegg: 8180
Eðli:
Alltaf gapandi. Óáreiðanlegur tækifærissinni og pólitískur ójafnaðarmaður. Besti vinur þess sem er við völd eða á péning.
Fræðasvið:
Doktor í fáfræði. Ónytjafræðingur með sundrunarlíffræði sem sérgrein. Veit allt um ekki neitt...
Æviágrip:
***Top secret***
[Ritskoðað]
Huxi var fæddur að -----------------þann ------- og ólst upp að -------------------- Eftir nám -------------------------------------- sem -------------------------------------------------------- en þar var þá kennari --------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Hann fór síðan til starfa að ------------------- en ---------------------------------------------- Ekkert varð úr frekari ------------------------------------------------------------------- ------------------------------ Hann kynntist fljótlega ------------------------------------------------------------------------------ en ekki varð það henni til framdráttar. Huxi flutti þá til ---------------------------------og þar skrifaði hann sín helstu verk um ---------------------------------------------------------------------. Eftir komu sína til ---------------------------------------------------- hefur hann ekki getað á sér setið að blanda sér í umræður ----------------------------- og ------------------------------ en yfirleitt með -----------------------. Huxi er nú í sambúð með Færeyingnum og hefur undanfarið helst skipt sér af því hvernig sá sakleysingi lifir lífinu ásmt með því að tjá sig á hinum ýmsustu vefsíðum s.s.-----------------------------------------------Þar er ekki tekið mark á honum þar ferkar en annarstaðar samkvæmt áætlun sem ---------------------------------------------------------------------