Hvurnig í þríklofnu halaklipptu helvíti má það vera, að ég má ekki bregða mér aðeins í örstutt frí út fyrir landsteinana án þess að allt verði sjóð-snar- bullandi- hringavitlaust hérna.
Það var ekki flóar friður fyrir blaðurmennum og fréttasnápum í öllum falsmiðlum breskra, gjammandi út í eitt um að hér væri allt á leiðinni lóðbeint niður í neðsta víti. Það var varla hægt að snúa sér kvarthring án þess að þessir ódámar sæjust ekki einhverstaðar, hlakkanndi og hjakkandi á ótíðindunum. Er virkilega ekki hægt að skilja þjóðarskútuna eftir á sjálfstýringu í örfáa daga án þess að einhvurjir bjévítnas beinasnar taki kúrsinn beint í næstu og grýttustu fjöru sem fyrirfinnst?
Ég bara spyr...
Það lá við að þetta spillti fyrir mér fríinu.
Þú átt að sjálfsögðu að láta Færeyinginn hafa áhyggjur og ekki óhreinka þínar mjúku hendur með því sjálfur.
Kansku er þessi kreppa ekkert grín .Kanski eiga einhverjir sem hafa sett síðasta ekkjueyrin sinn að veði og valið vitlausan hest . Kanski er þettað ekkert gaman
fyrir alla. ekki veit ég því ég bí ekki í auga stormsins
GEH minn - á svona stundum er það eiginlega bara húmorinn sem bjargar geðheilsunni.
Það var mikið að þú fórst í frí. Þú áttir það sko skilið. En er þá ekki bara málið að gera fríið að einhverju varanlegu? Hreinlega flytja til enskumælandi lands og "brillera"?
Væni-Grétar: Ekki hafa áhyggjur af smáorðum. Það eru stærri vandamál reifuð í pistlingi þessum.
Krossa og Golíat: Það þarf verulega mikið að fara úr skorðum til þess að ég geti ekki veriði latur í útlöndum.
Tigra: Að sjálfsögðu er Færeyingurinn látinn hafa áhyggjurnar. Það liggur í augum uppi.
GEH og Þarfi: Hér er ekkert grínast: Þetta er allt fúlasta alvara. En það er oft nauðsynlegt að geta brosað að briminu og hlegið að hættunni.
Jarmi: Það hvarflaði vissulega að mér að fá mér vinnu þarna úti. Það var t.d. verið að auglýsa eftir jólastarfsmönnum í Marks & Spencer. En brilleringar eru ekki mín sterkasta hlið, svo ég lét þetta gullna tækifæri ganga mér úr greipum.
[Aftengir öndunarvél Aðalandarinnar]
[Gefur Dexxu frí]
Kabúlsjit mr. Huksi. Breyttu um nafn og skrifaðu Óhuksi - sem merkir væntanlega ´sá hugsanalausi´- sá sem ekkert kann að hugsa.