— GESTAPÓ —
Bakaradrengur
Heiðursgestur.
Pistlingur - 4/12/09
Kennitölur og peningaþvætti

Til varnar peningaþvætti skalt þú, (já þú), er þú sækir eftir afgreiðslu í næsta bankaútibúi, gefa upp kennitölu þína svo að bankinn viti nú við hvern er að eiga, og eigi hægara með að stoppa allt peningaþvætti.

Ef þú skýst í bankann og leggur smávegis inn á reikning íþróttafélags barnsins þíns, þá er ekki nóg að gefa upp kennitölu barnsins, heldur getur viðkomandi afgreiðsla ekki farið fram nema að þín kennitala sé skráð líka.

Í rannsóknarskýrlunni góðu kemur meðal annars fram, að mér skilst, að „Gerfimaður útlönd“ skuli á annað hundrað milljarða í bankakerfinu, og hafi jafnframt fengið vel á fimmta milljarð í arðgreiðslur.

Nú er mín tillaga sú, að fólk sem á erindi í banka fyrir annan aðila noti héðan í frá eingöngu kennitöluna 010130-7789 þegar gefa þarf upp hvern verið sé að afgreiða.

Allir saman nú, einn, tveir, þrír...

   (3 af 5)  
4/12/09 16:02

Madam Escoffier

Madam var úthlutað kennitölunni 010130 4339 og hefur sú kennitala reynst henni ákaflega vel.

4/12/09 16:02

Regína

Ég sé að ég þarf að fara að lesa þessa skýrslu.

4/12/09 17:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Fínt ljóð

4/12/09 18:02

Amon

Man ekki til þess að ég eigi kennitölu, er nauðsynlegt að hafa þannig? Ég á, held ég, PIN númer einhverstaðar, dugar slík talnaruna?

4/12/09 18:02

Bakaradrengur

Notaðu bara þessa sem hér er gefin upp. Hún dugar vel til arðgreiðslna og afskrifta.

4/12/09 20:01

Kiddi Finni

Mér finnst lélegt af þessum gaurum sem voru í þessu braski að hafa ekki hugmyndaflug að kalla gerfimenn sina eitthvað annað. Hvað varð t.d. um þann nafntogaða aðila "John Smith" ?

Bakaradrengur:
  • Fæðing hér: 16/9/07 17:09
  • Síðast á ferli: 29/11/22 18:48
  • Innlegg: 1744
Eðli:
Þú hnerrar af of miklum pipar!
Fræðasvið:
Piparkökur.
Æviágrip:
Fæddist í Hálsaskógi. Fékk vinnu hjá Hérastubbi og er alveg að verða búinn að læra að baka piparkökur. Var sendur til að kaupa meiri pipar, en rata ekki heim aftur.