Rétt í þessu barst mér athyglisverður emill frá fréttamiðlinum al-Jazeera.
Þar er mér þakkað fyrir stuðninginn í gegnum árin og fyrir þann hlýhug sem ég hef sýnt þessu góða fólki.
Ætli ég verði "Súkkulaði" þegar hryðjuverkamennirnir láta að sér kveða?
Ég man ekki eftir að hafa stutt þá á nokkurn hátt...
Þetta er vissulega grafalvarlegt mál...
Er ekki vissara að láta Halldór og Björn vita, svona til þess að þeir geti verið viðbúnir?
Ég kann illa við að nafnið Emill sé notað yfir tölvupóst. Ekki að mig langi neitt til að heita Emill þó.