Er fólk fer í leit að vinnu villja veitendurnir væntanlegu líklega fá frá einhverjum öðrum svo kölluð me[ð]mæli <br /> Meðmæli: Umsögn <br /> Me-mæli: jarm <br /> Memmmæli: ástarbréf<br />
Þetta er svakalegt
Hvernig á að gefa léleg meðmæli eru það ekki mótmæli þó réttmæli sé?
nær væri að menn myndu fara fram á ummæli en ekki meðmæli svo gætu góð ummæli flokkast sem eða talist til meðmæla sem væri virkilega gaman að geta veitt góðu fólki á góðum stundum þegar þörfin væri mikil og neiðin nærri því farin að kenna fólkinu að dikta upp ómæli um sjálft sig.
Ég gæti aldrei gefið Guðna Ágústssyni meðmæli en hann á örugglega nokkur ummæli skilin, því sitt sýnist hverjum um þrjótinn.
Eftir sem áður þá stendur uppúr að meðmæli heita hér eftir Ummæli enda gegna þau hlutverki umsagnar og meðmælendur verða þá sjálfkrafa ummælendur enda mæla þeir um hvernig viðkomandi aðili sem er mældur um er, hefur hagað sér og þess háttar.
Me-mæli er einungis jarm þeirra er eigi kunna að tala eða frambera, ekki flembera, eðið -Ð.
Memmmæli er það þegar mælt er um memmið hvort einhver vili mæla memm og vera memm sum sé ástarbréf
Fólkið í landinu ætti að geta gefið stjórnmálamönnum meðmæli til að meta hæfni þeirra í næsta starf... þá væri Davíð Oddsson sennilega á atvinnuleysisbótum í dag.
Hvaða vonzka er þetta út í hann Guðna Ágústsson, Berti? Guðni er mikill sómamaður og með frambærilegri ráherrum okkar. Væri ég búsettur í Suðurkjördæmi en næsta víst að ég væri framsóknarmaður.
Guðni er fyndin, en hann er ekki frambærilegur stjórnmálamaður. Til þess er hann of grunnhygginn. Hann getur ekki einu sinni vitnað rétt í Njálu. Það minnir of mikið á G. W. Bush.
kannski vitnar hann rétt í einhverja óþekkta gálu, en hann þekkir ekki til Njálu, því er nú ver og miður