-Afar þunnskipuð mótmæli við annan gafl Alþingishússins við austurvöll þann 11 - 12 -2003.
-Í dag 11. des mætti ég með upprúllað skott og ætlaði mér að bera vígtennurnar ásamt samborgurum mínum við austurvöll.
Þetta var í tilefni auglýsingaherferðar samtaka þeirra sem vinna fyrir sér með höndunum.
-Þegar ég kom niður á Austurvöll þá voru þar sjö menn með skilti, 6 menn með lögguhúfur og bifreið frá sjónvarpinu.
-Mér varð strax ljóst að ég hafði mætt á röng mótmæli.
Þarna var löggan að mótmæla einhverjum fjandanum og sjónvarpsfréttamenn höfðu fundið sér frítt bílastæði.
-Það væri fallegra af verkalýðshreyfingunni að eyða peningum meðlima hennar í bjór, fremur en misvísandi auglýsingar í útvarpi. Einnig væri vingjarnlegt af samtökum verkalýðsins að gera ekki olíuskip úr úlfaldaræfli í framtíðinni og senda þannig grandvaralausa í síðdegisgöngu út af engu.
Ég gef þessum mótmælum 4. rottur og eina stjörnu sem gabb.