Hnífur Abrahams er eftiröpun, spennandi á kostnað annarra bóka.
Gamall maður flýr undan morðingja sínum. Það síðasta sem hann gerir er að reyna að bjarga hinu mikilfenglegu upplýsingum sem ekki mega glatast. Síðan er hann drepinn og átti þetta sér stað í formála bókarinnar. Fyrsti kafli. Á meðan á þessu stóð var prófessor við virtan háskóla að halda fyrirlestur. Hann hafði ætlað sér að hitta gamla manninn um daginn.... KANNAST ENGINN VIÐ ÞENNAN SÖGUÞRÁÐ? Hnífur Abrahams er í stuttu máli skrifuð af manni sem hefur haft Da Vinci lykilinn og alfræðiorðabók við hliðina á sér við vinnuna. Og ekki skemmir fyrir að sami maðurinn og sá sem samdi þessa bók samdi líka ævisögu Hannesar Hólmsteins.
Þessi lýsing mín hér að ofan á fyrstu köflum bókarinnar gefur aðeins smjörþefinn af því hversu lík þessi bók og Da Vinci lykillinn eru.
Bókin er svosem ágæt í lestri, spennandi, fræðandi, en bara ef maður hefur ekki lesið Da Vinci Code áður.
Bók fyrir þá sem vilja fræðast um það sem þessi maður hefur að segja.
Ein stjarna.
Ég fékk nú oft á tilfinninguna þegar ég var að lesa DaVinci lykilinn að ég hefði séð þetta atriði áður, í bók eða bíó. Svo var einhver norsk bók skrifuð á sama tíma sem var skuggalega lík. Man ekki bókarnafnið en höfundurinn hét Tom Egeland eða eitthvað slíkt.
Hét eitthvqð með Hringstigann, var hundleiðinleg, allt sem Dan Browngerði var að bæta inn nokkrum glötuðum eltingaleikjum og byssubardögum...
Ég hefði frekarátt að lesa Nafn rósarinnar aftur...á Ensku... þýðing Thors er ekki lesandi...
Áhugamönnum um ,,höfundarverk" Óttars M. Norðfjörð bendi ég á þessa grein:
http://www.bokmenntir.is/hofundur.asp?cat_id=1215&module_id=210& amp;element_id=1984&author_id=122&lang=1
Nei, bara einhverjar staðreyndir sem hanga fyrir framan nefið á öllum, samt alveg sniðugt í sjálfu sér.