Frekar mikill nýgræðingur í þessu.
Taka má það fram, að ég eignaðist plötuna : "Jól og Blíða" fyrir skömmu, og kom hún mér svo sannarlega í jólaskapið. Er ég einstaklega sáttur með hana og framvindu laganna. Uppáhalds lagið mitt verður að vera "Sagan af Jésúsi".
Er ég taktfastur aðdáandi Baggalúts, þó að ég hafi einungis uppgötvað þessa síðu snemma í desember 2006. Mun ég nú reyna að bæta úr því og koma hingað sem oftast.
Kveðjur frá Alfreð Æringja Önd.
Vertu velkominn Alfreð. Alltaf má á sig öndum bæta. Passaðu þig bara að andast ekki.
Enn önnur öndin... Þessi er samt voða krúttleg.
[Klappar Alfreði og hendir í hann brauði]
Æ, þær fyllast svo fljótt af skít. Endur eru nú ekki hreinlegustu dýrin...
...held að menn fari bara að standa á öndinni, þetta fer að verða steikt og ýmsir með öndinni í hálsinum.
Þakka ykkur öllum fyrir.
Hexía vissi mitt rétta nafn
[Furðu lostinn og hæstánægður]