— GESTAPÓ —
Ziyi Zhang
Óbreyttur gestur.
Sálmur - 2/11/06
Nýji Heimurinn

Hleypur svartur hestur heim
hraður bjartur vakur
Vestur partur vesturheims
verður artur akur


Tunglið baðar Taumar lás
Teymið laðar vestar
Siglir hraðar straumarás
seinkar kvaðar lestar


Stígur fákur snákinn á
styggir hákur hestinn
Sýpur hrákur stákur þá
Spýtir strákur lestinn

   (15 af 29)  
2/11/06 06:01

Álfelgur

Þetta er ansi mikið ofstuðlað hjá þér... En fallega myndrænt.

2/11/06 06:01

Tigra

Ahh.. þú verður að passa þig með S.
St stuðlar ekki við si eða se. (en þó stuðla si og se saman)
Sý stuðlar svo ekki við st og hvorugt þeirra stuðlar við sp.
S er vandræðastafur til að hafa sem stuðul eða höfuðstaf.

Fínasta kvæði samt - fínt innrím.

2/11/06 06:01

Ziyi Zhang

Já mikið rétt, ég mun hafa alla stuðlun í hávegum næst þegar ég kæri mig um að yrkja.

Ziyi Zhang:
  • Fæðing hér: 13/11/06 17:34
  • Síðast á ferli: 1/12/08 08:26
  • Innlegg: 75
Eðli:
Æðisleg í alla staði.
Æviágrip:
Fæddist árið 1979 í Peking, Pabbi minn er hagfræðingur og mamma mín var leikskóla kennari. Ég hef leikið í fjöld kvikmynda á borð við þvottabjarnar prinsessan, Vegurinn heim og Hetja.