Hagyrðingamót verður haldið hér sunnudagskvöldið 3ja febrúar kl. 22:00 -23:30.
Yrkisefni:
1. Hógværð. Má vera kynning ef vill.
2. Bollur.
3. Litir. Allir eiga sinn uppáhaldslit.
4. Þorrinn. Hér má tala um mat, eða veður, eða hvað sem fólki dettur í hug.
5. Lofkvæði. Helst um Gestapóa sem ekki er hagmæltur.
6. Leyniefni. Ekki leyniefnið hennar Hexíu, heldur yrkisefni kynnt á mótinu.
Mætum öll vel og stundvíslega.
Það sem vjer birtum á síðasta móti var alltof mikill leirburður þannig að vjer mætum eigi nema vjer náum að undirbúa oss almennilega (sem vonandi verður).
Ég ætla að reyna að muna eftir þessu í þetta sinn.
[Dæsir mæðulega, slær sig í ennið og límir gula límmiða út um allt]
Jú , ef ég get barið saman einhverju þá sýni ég fágætt hæfileikaleysi mitt í verki.
albin hefur áður rímað
ansi vel.
Nú hann þykist hafa hrímað
hugarþel.
PissuStopp: Ég er alveg andlaus þessa dagana. Reyni samt að mæta. <Dæsir mæðulega og yddar höfuðstafinn>
Piff, allir dauðir þorpsbúar sem fengu þennan þráð í pósti svöruðu með: Abbababb, þú sendir vitlaust! Thíhí.
Ég prófaði að fara inn á þetta núna í kvöld í gegnum póst sem ég sendi dauðum þorpsbúa í leiknum og fékk svona adblokk. Getur verið að sumir dauðir þorpsbúar hafi hreinlega ekki fengið þennan þráð í póstinum, út af adblokki í tölvunni sinni?