Uppá síðkastið hefur mín víðfræga hreinskilni og mínar víðfrægu sterku skoðanir ekki átt uppá pallborðið hjá fólki , og jafnvel fólki sem hefur þekkt mig í mörg mörg herrans ár. Ég gef þessu pakki fingurinn og eina drulluköku beint í smettið.
Ég hef ákveðið að vera sammála öllum hér eftir, það er held ég bara heppilegast, vingsast einsog viljalaus rola á eftir öllum þeim sem smella fingri í áttina að mér og ætlast til að ég geri eitthvað fyrir þá endalaust þeim til hæginda og svo þeir séu nú ekki að vinna vinnuna sína sjálfir.
Já elskan , ég gæti ekki verið meira sammála, þú hefur algjörlega rétt fyrir þér , já auðviyað hef ég ekki hundsvit á þessu, nei nei auðvitað er ég sammála þér og öllum hinum líka.
Takk fyrir og þar sem ég er lúser þá spyr ég hver nennir að bakka yfir mig á bílnum sínum.
Hver fjandinn hljóp núna í þig kelling?
Villtu bara haga þér almennilega og koma til baka sem þú sjálf.
[Þolir ekki gufur sem eru sammála öllu og öllum]
Ég er algerlega sammála Dulu, Huxa, Lopa, Jóka, Dorra og þó einkum Galdrameistaranum.
[Hrökklast afturábak og hrasar við]
Vjer erum alveg ósammála því að það sem þjer lýsið í eftirfarandi tilvitnun sje nauðsynlegt: "Ég hef ákveðið að vera sammála öllum hér eftir...". Í samræmi við tilvitnunina ber yður svo að vera sammála þessari athugasemd vorri í einu og öllu [Glottir eins og fífl].
Hvaða fordómar eru þetta gagnvart drullukökum? Alltaf gaf ég frænkum mínum (sem áttu svokallað afmæli um sumar) fallega skreyttar drullukökur í afmælisgjöf.
En... er þetta jássssskan og skálskan að rétta fingurinn osfrv.?
Já elskan , drullukökur eru mjög góðar, kannski ekki á fleygiferð í andlitið á manni , en samt alveg góðar fyrir utan það .