Nú þegar rétt rúmlega mánuður er í ársháíðina þá er ekki úr vegi að lýsa yfir tilhlökkun minni og einng langar mig til að tilkynna örlitlar breytingar á myndinni minni sem ég fékk nú með Dularfulla manninum, það er við hæfi að breyta til reglulega og ætla ég að senda enter mynd.
Ég er ekki á móti gulum en gulur fer leikonunni minni bara svo skelfilega illa að ég ákvað að virða óskir hennar um árshátíðarklæðnað sem er bleikt með miklu skarti þannig að þetta varð niðurstaðan.
Annars er hugmyndaskortur minn það mikill núna að ég gat ekki einusinni bætt inní þetta félagsrit neinu safaríku eða bitastæðu fyrir hann Trölla okkar til að snúa útúr og breyta.
Sæl að sinni, hlakka til að sjá sem flesta á árshátíðinni.
Er ekki hlewagastiR og Dula ein og sama persónan. Stafsetningin og málfarið kemur alltaf upp um fallvaldinn sjálfann.
Þetta voru auðvitað bara mistök að þú skyldir vera gul, þú hefur alltaf verið bleik. Til hamingju!
Þarna ertu orðin þú sjálf! Mér lýst vel á þig.
Ég vona samt að Gestapóar fari ekki að taka upp á því í stórum stíl að breyta útliti sínu fyrir árshátíðina til að einfalda klæðnaðinn.
[Glottir eins og fífl]
Þú hefðir þó alltaf verið afsökuð í miklu bleiku, því eins og við sögðum má líka mæta í character.
Þetta lítur vel út en þó bendir liturinn til kóbaltskorts. Eða er skartið kannski úr kóbalti húðuðu með bleikum lit ?
Áfram bleikir! Það er alveg kjörið að breyta í bleikt nú í október.
En 'bleika' rímar ekki við Dula, það er svo flott að segja Dula gula! Sæt mynd samt!
Jæja Jarmi, tókst þú ekki myntkörfulán hérna um árið til að fjármagna hlutbréfakaup í Glitni?
Jeg tók ýmislégt og jeg gérði ímis-legt meira ... þá þegarr ég þókknaðist préstnum... sem brossti. Alltaf.
Kíkti á Delicatessen (1991) um daginn. Hún stenst ágætlega tímans tönn. Séð einhverja góða mynd nýlega?
Myndir eru auðvitað bara einhvers túlkun á því umræddu (eða ekki) augnabliki... sem og við trúum? En nei. Sá ekki -delicatessen- ... enda er ég ómenntaður kjáni sem heldur að þrír punktar í röð reddi honum frá því að læra setningafræði.
Jarmi ekki skipta um mynd.
En já þetta er flott breyting dula.
Kanski ég komi aftur útúr bleika skápnum fyrst svona öflugur liðsmaður fer í bleika liðið.
ERTU ORÐIN ALVEG KOLGEGGJUÐ DULA? ÆTLARÐU AÐ SKIPTA UM LIT? ÉG HELD AÐ ÞAÐ VÆRI RÉTTASTA AÐ FLENGJA ÞIG OPINBERLEGA Á ÁRSHÁTÍÐINNI EF ÞÚ FREMUR SVONA HEIMSKUPAR.
Jæja, ef þú ert ákveðin... þá mæli ég með að þú sendir Enter hinum almáttuga , lofað sé nafn hans, myndina í upprunalegum litum. Hann er allra mann hæfastur til að færa fólk í sinn rétta lit.
Ekki ætla ég að endurtaka enn og aftur andúð mína á myndabreytingum, svo ég ætla bara að leggja kapal í staðinn.
[Leggur kapal, en sér að spaðaásinn vantar. Þrusar stokknum út í vegg og sér um leið að spaðaásinn var enginn annar en Valur úr ,,Sval og Val". Verður hissa]
Ég get glatt ykkur með því að myndin er af sömu konunni hvort sem hún verður bleik eða gul. Kimi minn, ef þig vantar einhvern til að spila þá máttu alveg hóa í mig, ég verð í nágrenninu um helgina.
Þetta er mjög flott mynd!!
En, ég mæli eindregið með því að vera blá.
ég er búin að senda enter mynina fyrir löngu, en það er nú bara kreppa og kannski ekki hægt að breyta strax [dæsir mæðulega]