Þú ert frjáls litli minn. Frjáls.
Héðan í frá munt þú einungis upplifa hamingju og gleði í hjarta.
Nej for helvede! Men du kan hygge dig til at Kim Larsen er lige ved at besøge os! [Mumler "...de smukke unge mennesker..."]
Hættið að æla þessu nýlendukúgunarhrognamáli yfir ægifagrar og íslenskar síður Baggalúts! Þið óhreinkið tærleika hans.
Það er nú kannski tilgangurinn, Hakuchi minn kæri - að benda á fegurð íslenskrar tungu. Ég sletti nú líka á pólsku fyrr í dag. Þeir eru með kúgaðrahrognamál.
Þessir andskotans feitu öl drekkandi asnar sem
seldu úldið mjöl og kjöt á okurverði og bönnuðu
ættigjum okkar að svo mikið sem veiða murtu í vöttnum okkar og sendu feður okkar á Brymarhólm fari þeir í rass og rófu og meigi rigna á þá um allt sumar og alla ævi
'Eg skildi vilja drepa þá alla og drepa tittlinga
í framan á þá á eftir
Það ætti að sprengja upp Danmörku fyrir þetta tungumál og láta þá loga í helvíti fyrir þessar tölur þeirra.
Menn hafa nú dáið úr dönsku, ef eitthvað er að marka Harry og Heimi... [Glottir eins og fífl]
Þetta hefur vakið þveröfug áhrif en ég vonaðist til. Sorgardagur þetta er, annað er fásinna.
Takk hr. Dinesen. Gaman er að segja frá því að ég svaraði nokkrum spurningum um þig, helvíti magnað.
Já var það ekki! Ég hefði nú getað spurt þig út úr fyrir prófið - en þess hefur vafalaust ekki verið þörf.
Ég samgleðst þér innilega og greini frá því að ég, líkt og Berserkur, er líka að fara í mitt síðasta dönskupróf næstkomandi miðvikudag.
Iss. Þið Berserkur hefðuð kannski bara átt að nota tímann í að læra eitthvað í dönskunni í stað þess að spila hér heimskulega leiki eins og "Annaðhvort eða" og "Já eða nei". Þá mæli ég frekar með sígildum leikjum eins og "Kóngaspilinu" eða "Gemmeleg". Í þeim síðarnefnda felur einhver hlut og hinn leitar. Ef sá sem leitar er að nálgast hlutinn er kallað "Varm!" en ef hann fjarlægist hann er kallað "Kold!". Ef viðkomandi er mjög nálægt má kalla "Tampen brænder!!!". Sá fyrrnefndi er sennilega of flókinn fyrir byrjendur.
Ég hef ekki tekið mikinn þátt í þessum leikjum sem þú nefnir en ég hef heldur ekki tekið mikinn þátt í dönskunni. Gunnar er samt afar virkur á báðum sviðum.
Jæja, ég var nú meira að koma því að hvernig Gemmeleg er leikinn skv. dönskum reglum. Ég hef auðvitað ekki hugmynd um hvernig þið hafið varið tímanum kæru félagar. En að öðru, ég þori að veðja að fleiri en 80% þeirra sem taka prófið með ykkur vita ekki að það eru bara tvö kyn í dönsku.
Ég vil helst ekki vera að gefa of mikið upp, en það er augljóst að þú veist ekki hverjir það eru sem munu koma til með að þeyta prófið með okkur, né í hvaða skóla við erum.
Nei, þetta var nú líka í léttu gríni. Hið rétta er hins vegar vafalaust að 80% af almenningi veit það ekki. Þessi fullyrðing fullyrðist hér með dauð og ómerk.
Mér finnst þetta nú ansi þunnt QED. Hvernig væri að grafa upp einhvern núlifandi Dana sem hefur ekki fyrir löngu flúðið dönskumælandi landa sýna (sem er reyndar merki um gáfur).
Niels Bohr? Dauður 1962! Vann við að smíða kjarnorkusprengju fyrir Bandaríkin, afar gáfulegt.
Tycho Brahe? Dauður 1601! Dánarorsök: Gleymdi að fara á klósettið!
Isak Dinesen? Hún hefur verið dauð síðan 1962!
Søren Kierkegaard? Dauður 1855! Existensíalistar teljast heldur ekki með samkvæmt skilgreiningu.
Bjarne Stroustrup? Loksins einstaklingur sem er ekki búinn að liggja dauður á kistubotni í 40 ár eða meira! Bjarni tók þá skynsamlegu ákvörðun flytja til Texas og tala þar meira af ensku heldur en dönsku.
Merkilegt hjá þér að vitna í latínu því ansi er ég viss um að Tycho og Kierkegaard hefði líka þótt fínna að mæla á Latínu heldur en dönsku.
Uss já, heimurinn versnandi fer. Við skulum allavega ekki minnast á Texó og skærustu stjörnu þess í þessu samhengi.
Hér ætla ég að laumupúkast. Hér finnur mig enginn. [Gerir sig pínulitla og vefur sig inn í angóragarn]
HÆ!!! Goggurinn hefur eitthvað verið að breyta hjá sér, umskíra og/eða henda.
Hreinsunaraðgerða var þörf. Smá sagnfræðilegar leiðréttingar hafa aldrei drepið neinn.
Helvítis helvíti!
Var ekki hér sem hinn eitursniðugi mótmælaþráður var eitt sinn til húsa?
Ég mótmæli öll!