Hér eftir fer álit mitt á liðinu sem rak Þórólf okkar, sem staðið hefur sig frábærlaga í starfi, hvort haldur er hjá borg, Tal eða Essó.
FÁBJÁNAR
Látum næst Bjössa Buru segja af sér. Hann hefur framið ömurleg afglöp í núverandi starfi sínu og fengið ávítur og jafnvel dóma fyrir. Af hverju situr maðurinn enn sem fastast?
Afglöp sem hann gerði fyrir 10 árum. Ég held að þetta "pakk" sem hefur grenjað hvað hæðst ætti að líta í spegil og skammast sín. Út með Sólveigu Péturs, Björn Bjarnason, Halldór Ásgrímsson svo dæmi séu tekin. Allir eiga þeir hagsmuna að gæta og er Halldór örugglega leppur kvótaeigenda, enda á hann hlut í útgerð. Skítapakk.
Fibblagngur, þú hlýtur að vera að grínast? Maðurinn verður að segja af sér strax.
Ég sé eftir Þórólfi. Mér finnst þetta sorglegt og skammast mín fyrir að búa í landi þar sem mönnum er ekki stætt í starfi vegna pólitískra ofsókna. Kasti sá fyrst steininum sem syndlaus er.
Já það er skítt að loksins þegar kemur hæfur maður sem stendur sig vel og er eins og venjulegt fólk í landinu þurfi hann að segja af sér vegna gamalla mistaka í öðru starfi. Hvar ætla þessir asnar að finna einhvern sem getur komið í staðinn? Ég tek undir með Fíbblagangi; FÁBJÁNAR!
Það kemur maður í manns stað... verst hvað það er erfitt að finna einhvern jafn fínan og Þórólf.
Við viljum að menn axli sína ábyrgð, Þórólfur gerði það og er því formlega fyrirgefið af minni hálfu. Í stað þess vorkenna honum eigum við að setja þessa kröfu á alla aðra sem brjóta af sér.
já, ef þeir brjóta af sér í starfi. Hann braut ekkert af sér í starfi. Hann stóð sig afspyrnuvel í starfi. Það ætti að ráða hann aftur.
Don't do the crime if you can't do the time. Hvernig eiga þessir menn að axla ábyrgð án þess að það komi niður á þeim? Ég hefði raunar viljað sjá Þórólf settann í frí um leið og skýrslan var gerð opinber, síðan hefði verðið hægt að velta fyrir sér framhaldinu. Ég vil að þessum mönnum verði refsað, að þeir fái á sig dóm.
Mönnum í ábyrgðar- og trúnaðarstöðum er heilladrjúgast að segja af sér falli á þá grunur um græsku. Þar með eru þeir ekki að játa sekt sína heldur taka af allan vafa um að þeir starfa í umboði annara, en ekki sjálfra sín. Fátt er brjóstumkennanlegra en menn sem ríghalda í embætti sín, og hefur þórólfur vonandi sett hér langþráð fordæmi um sæmd og heiður í starfi.
Sami fíflagangurin í fíflinu.. heldur að hann sé betri en hinir og aðrir séu jafn mikil fifl og hann sjálfur og þess vegna elti allir asnaskapinn í honum.. hann er rétt nefndur Fíflið