— GESTAPÓ —
Kroppinbakur
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Kroppinbakur:
  • Fæðing hér: 10/12/05 05:11
  • Síðast á ferli: 20/9/06 07:33
  • Innlegg: 0
Eðli:
Maður sem hefur hundsvit á mörgu en ekki djúpt vit á neinu sérstöku.
Fræðasvið:
Lauk grunnskóla á síðustu öld, hef stundað nám á háskólastigi síðustu misseri og er með allskonar námskeið og svoleiðis vitleysu að baki. Síðustu 10 ár hef ég verið að reyna að vera tölvunörd með misjöfnum árangri. Get splæst saman tóg og gert við bíla og þyki ágætlega handlaginn. Þó hef ég aldrei náð tökum á handrukkun sökum góðs innrætis.
Æviágrip:
Er einn af deyjandi kynslóð sem er alinn upp í hermannabröggum og líkaði bara vel. Var stundum skrítið í æsku að vakna á köldum frostmorgnum með sængina raka vegna sagga frá útvegg. Hef komið víða við á atvinnumarkaðinum og unnið við flest sem nöfnum tjáir að nefna. Er einn af 11 systkinum og erum við flest hálfsystkini því faðir minn blessaður (blessuð sé minnig hans) var eins og biðukolla og frjófgaði konur um allt land. Karlmenn í þessari ætt eru fínir til undaneldis en ekki langvarandi sambanda vegna skapofsa. Hef elst vel og þrátt fyrir mörg og mikil höfuðhögg þá er ég ennþá talandi og gangandi þó ótrúlegt sé. Get þakkað því helst að höfuðið á mér er sterkasti hlutinn enda bein í gegn. Ætti kannski að heita "Bonehead" hér því það er miklu betri lýsing á mér.