Allir geta brosið bætt
blíðlyndir sem aðrir
Gestapóar gleðja sætt
og gullnar hafa fjaðrir
Gestapóa brosin breið
bæta allt og kæta
Álpast vinir útaf leið
aftur sáttir mæta
Takk fyrir þetta. Þetta minnir mig óneitanlega á söng þeirrar ágætu hljómsveitar Baggalúts...
BROSTU ÞAÐ KOSTAR EKKI NEITT,
BROSTU ÚT Í ANNAÐ - ÚT Í EITT...
Bros þitt ljúft og lokkandi
lokkaprúða vina.
-----------------------
Lappi kemur skokkandi
seinna færðu hina.
Koss og knús
Lappi
Góðu kvæðin gerir Lappi
gæðadrengurinn.
Hann er sannur kvæða kappi
konufengurinn.
[Knúsar Lappa]
Laumast Salk' og Lappi hljótt,
ljóð á milli bera.
Bragaleikur breytist skjótt,
í boldangs þráðinn svera.