Skamm !
18.08.2004
Nú á dögunum komum vér oss upp tölvupóstfangi hjá Hotmail sérstaklega vegna veru vorrar hér á Gestapó. Þá bar svo við að oss var eigi leyft að taka oss póstfangið vladimir_fuckov@hotmail_SPAMSUCKS.XcomY . Eigi var það sökum þess að nafn þetta væri þegar í notkun heldur þótti eitthvað athugavert við nafnið. Á endanum neyddumst vér til að notast við vladimir_fu. Að vísu hljómar Vladimir Fu (eða jafnvel Vladimir Foo fyrir þá er kannast við hið stórmerkilega fyrirbæri foo) eigi svo illa þannig að e.t.v. ættum vér að skipta um nafn ? Þetta finnst oss samt heldur langt gengið. Eigi getum vér að því gert að bera þetta nafn. Svei !