Enginn getur sagt að ekki hafi verið varað við hættunni í tíma
Alveg er það óþolandi þegar eitthvað gerist sem búið var að vara við, búið að benda á nauðsynlegar aðgerðir, ekkert var samt gert og svo skellur vandamálið á af fullum þunga og allir þykjast hissa. Fyrir skömmu gerðust atburðir er sýndu fram á að málflutningur vor og fleiri hafði verið rjettur. Bent hafði verið á vandamál og því lýst nokkuð nákvæmlega og bent á óæskilegar afleiðingar þess. En eigi stoðar alltaf að nöldra og röfla, það þarf að benda á lausnir. Og það var gert ! Bent var á hina fullkomnu lausn á vandanum, lausn til frambúðar, lausn sem þar að auki var einföld í framkvæmd. Hina fullkomnu lausn.
Auðvelt er að geta sjer til um hvað var gert. Ekki neitt. Steinsofandi og framtakslausir pólitíkusar hunsuðu allar aðvaranir, ljetu eins og vandmálið gæti aldrei skotið upp kollinum og montuðu sig af þeim (satt að segja lítilfjörlegu miðað við mikilvægi málsins) fjárhæðum er spöruðust (eða jafnvel græddust) með því að gera ekkert. En fyrir stuttu skall vandamálið á af fullum þunga, vandamál er vjer nöldruðum yfir í þessu fjelagsriti:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=176&n=303
Og í þessu fjelagsriti var bent á hina fullkomnu lausn á vandanum:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=176&n=2219
Samt var ekkert gert. Og rjett fyrir síðustu helgi skall þetta vandamál af fullum þunga á höfðuborgarbúum. Það hefði hindrað það öngþveiti er þá varð ef handónýtir polítíkusar hefðu verið búnir að bregðast við margra ára gömlum aðvörunum og drattast til að leysa vandamálið á þann hátt er á var bent.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Geturðu ekki bara gengið í skóm með öflugum plútóníumsólum sem bræða allan snjó þar sem þú gengur?
Gallinn við þá lausn er sá að hún hentar af augljósum ástæðum afar illa í djúpum snjó og sköflum. Þar að auki höfðum vjer líka í huga bílaumferð.
Það er óþarfi að geyma skriðdrekana inni í skúr í svona ástandi. Þetta er rétti tíminn til að nota þá!
Pólítíkusar hafa engan áhuga á að leysa vandamál. Þeir vinna við það að búa þau til. Snilldar hugmynd sem eyðir vanda hraðar en þeim er unt að framleiða hann, gerir þá atvinnulausa.
Við ættum að útrýma pólitíkusum og sjá svo hvort hálkan fari ekki í kjölfarið, eða a.m.k. minnki.