Nú er stóra tækifærið - ef rjett er á málum haldið
Hvaða ljóslausu löggjafarstofnunum datt eiginlega í hug að skipuleggja herferðina gegn glóperunni með þeim hætti sem raun ber vitni ? Svo virðist sem reiknimeistarar innmúraðir í himinháa, gluggalausa fílabeinsturna hafi reiknað út samkvæmt fyrirfram ákveðinni niðurstöðu að glóperur sjeu fram úr hófi kostnaðarsamar og orkufrekar. Þetta kann að vera rjett en það er aukaastriði. Aðalatriðið er að þessir 'háu' herrar hafa augljóslega ekki sjeð glóru út úr augunum inni í dimmum skúmaskotum síns heittelskaða, vel ljóseinangrandi og algjörlega vitsmunalega einangrandi fílabeinsturns er þeir veltu fyrir sjer hvað koma skyldi í staðinn. Í stað glóperunnar á nefnilega að koma sk. 'sparpera'. Í stað milds ljóss hinnar gamalkunnu glóperu kemur kuldalegur bjarmi sparperunnar. Í stað einhvers sem glóir kemur eitthvað sem sparar. Sparar ?! Helsta hlutverk peru er að glóa en eigi spara. Spara, spara, spara er vissulega eitt það mikilvægasta í kreppu dagsins í dag en það verður þá að spara á rjettan hátt. Í stað þess að taka upp sparperur á að sjálfsögðu að nota tækifærið og taka upp plútóníumperur Ljómar upp.
Með því að taka upp plútóníumperur næst margfaldur sparnaður. Birtan er mildari, betri og hlýlegri en frá öðrum perum. Hlýlegri í margfaldri merkingu því plútóníum má líka nota í stað ofna og losna þannig líka við hina daunillu og rándýru hitaveitu. Jafnframt þurfa plútóníumperur ekkert rafmagn, þær eru sinn eigin orkugjafi. Þar af leiðandi fylgja þeim engar af þeim hvimleiðu snúru- og víraflækjum sem flestir bölva hressilega með reglulegu millibili. Jafnframt dregur stórlega úr þörfinni fyrir raflínur og háspennulínur af augljósum orsökum og raforkunotkun hrynur. Gufar því deilan um HS Orku og Magma Energy upp sem dögg fyrir plútóníumperu því einfaldlega má slökkva á allri orkuvinnslu á Reykjanesskaganum og eiga samt eftir ógrynnin öll af umframorku í landinu.
Eini ókosturinn sem þessu fylgir er lítilsháttar geislavirkni en ekki verður farið nánar út í þá sálma hjer því það vandamál er auðvelt að leysa eins og margoft áður hefur komið fram.
Svo þarna myndu perur spara meðan þær glóðu og glóa meðan þær spara. Sameinar kosti beggja hinna.
Vjer áttuðum oss allt í einu á að vjer gleymdum að nefna einn minniháttar ókost við plútóníumperur: Það er ekki hægt að slökkva á þeim. Það vandamál er hinsvegar auðleysanlegt.
Er hægt að slökkva á plútóníumperu?
Spara líst mér vel á! [Sparar helling]
Nei, það er eigi hægt að slökkva á plútóníumperu. Það vandamál er hinsvegar sem fyrr segir auðleyst. Sje nauðsynlegt að losna tímabundið við birtuna frá slíkri peru er hægt að láta plútóníumknúið lok eða hlera fylgja slíkri peru. Myndi það þá loka fyrir birtuna þegar 'slökkt' er á perunni.
Ég hef notað hitaþolna blýmúrsteina húðaða með nanó-bismút til að loka fyrir ljósið tímabundið. Það leysir einnig geislavirknisvandamálið.
Ef mönnum er sama um geislunina þá er hægt að vera með nokkur sett af sólgleraugum hér og þar um húsið, og svo rafsuðuhjálm til að sofa með. Sólgleraugun eru sett á nefið eftir lýsingarþörf.