Misnotkun fjelagsrita ? Leirburður ? Bæði misnotkun og leirburður ? Eða sjálfsögð auglýsing ?
Fjelagsrit þetta er e.k. auglýsing á umræðu um árshátíð er áform eru um í nóvember, sbr. þennan þráð er allir ættu að lesa:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=345
Þeir er eigi hafa hafa vitað af ofangreindum þræði vita núna um hann sjeu þeir að lesa texta þennan.
Það er síðan kunnara en frá þurfi að segja að orðið lesbía olli því áður fyrr að Enter birtist ávallt nær samstundis. Svo virðist sem það hafi núna breyst og sjest hann minna en áður, e.t.v. vegna hryðjuverkastarfsemi óvina Baggalútssamsteypunnar. Eigi er hinsvegar útilokað að umrætt orð veki í staðinn athygli þeirra er eigi vissu af árshátíðarumræðunni og er þá tilganginum náð. Og mikilvægast er auðvitað að sem flestir mæti fremur en að lesbíur virki sem segulstál á Enter:
Lokkar Enter leynistað
lesbíuher frá ?
En mikilvægast væri að
vjer alla myndum sjá.
Látum vjer þessari blöndu af leirburði og auglýsingu hjer með formlega lokið og minnum aftur á lesbíska árshátíðarþráðinn. Skál !
Mig rennir grun í að nýtt orð þurfi nú til að laða Enter að. Spurningin er bara hvað. Ég ætla að prófa nokkur.
Svarfaðardalur
Ketill
Víðóma
Spennufall
Milli bilsástand
Kennileiti
Til hvers? Afhverju?
Þetta eru fyrir mér ekkert nema orð á skjá þangað til að ég sé vopnuð átök brjótast út.
Ég enda innlegg mín í dag á að leggja fram þá tillögu að menn fari að framleiða lesbíska farsíma. Að sjálfssögðu væri gott að hafa þá úr dauðum sáðfrumum eða einhverju öðru umhverfisvænu, og láta þá ganga fyrir umhverfisvænu eldsneyti eins og t.d. etanóli. Dauðar sáðfrumur, hey og lesbískur farsími fara ágætlega vel saman í mínum eyrum.
Við bara bjóðum þessu englum í glas.
ps Enter það vantar nýjar myndir í safnið helst bleika dragdrotningu.