Hættulegt vopn
Fyrir um mánuði fórum vjer að búast við að hvað úr hverju yrði Gestapó opnað á ný. Hugðumst vjer því hefja formlegan undirbúning komu vorrar hingað en strax í upphafi undirbúningsferlisins urðum vjer fyrir meiriháttar áfalli og vorum vjer marga daga að jafna oss á því. Stafaði áfallið af nýjum upplýsingum er oss bárust. Afleiðingar þessa geta orðið alvarlegar. Annað óþægilegt mál fylgdi þessu og tók oss marga daga að komast að því að eigi væri um nema eitt að ræða: Vjer neyddumst til að opinbera hluta vandamálsins fyrir Enter og e.t.v. fleirum og minnka þar með hugsanlega trú hans og Bagglýtinga allra á færni forsetaembættisins til að takast á við hina fjölmörgu óvini baggalútíska heimsveldisins. Og nú gerum vjer því þá óþægilegu játningu að óvinir ríkisins sjeu öflugri en nokkru sinni fyrr og ráði yfir stórhættulegu vopni. Vopni er verður að eyða. Vopni er verður að eyða fljótt. Neyðumst vjer því einhverntíma í næstu viku til að yfirgefa Gestapó í u.þ.b. tvær vikur og halda af landi brott til að finna þetta vopn og eyða því. Annars geta einhverjir fleiri gestir orðið fyrir áhrifum af vopninu. Reyndar finnst oss margt benda til að ýmsir gestir hafi nú þegar orðið fyrir áhrifum af vopninu. Áhrif þessi eru mikil og geta verið afar óþægileg. Þau voru það a.m.k. í tilviki voru:
Á þeim þremur mánuðum er ritstjórn var í sumarfríi tókst óvinum ríkisins að þurrka aðgangsorðið að Gestapó út úr heilabúi voru.
Magnaðast þykir mér að lykilorðið hafi ekki verið 'kóbalt'. Ég hélt að það væri lykillinn að öllum leyndardómum og þekkingu heimsins.
ps. annars er lykilorðið mitt 'pissudúkka'.
-
Og afhverju í andskotanum get ég ekki skrifað félagsrit. þegasr ég signa mig inn heldur mætist af skilaboðum um að ég sé nýgræðingur og verði að vera hérna lengur til að getasent frá mér félagsrit. Þú alvitri forseti afhverju er þettað sona?þú ert jú bara óbreyttur gestur sé ég
Af hverju ertu þá skráður inn, Vlad?
Varðandi félagsritin þá finnst mér að aflétta eigi kröfunni um 50 innleggja lágmark, að minnsta kosti tímabundið. Það eru hvort eð er engir nema við gamlingjarnir að skrifa hér eins og er.
Hah, þykist Texi vera með haus?
Gangi yðu vel að eyða þessu agalega vopni, kæri forseti, vanti yður aðstoð glímu- og sundkappa úr Ýsufirði bjallið þá bara í oss.