— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Vladimir Fuckov
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  sagnaþulur.
Pistlingur - 3/12/05
SAMSÆRI: Grundvöllur tilverunnar er Framsóknarflokkurinn (!)

Samsærið er umfangsmeira en NOKKURN (*) óraði fyrir<br /> <br /> (*) Deila má um rjettmæti þessa orðalags því nær enginn er til

Að undanförnu hafa verið mjög athyglisverðar umræður í nokkrum þráðum hjer á Gestapó. Sje hliðsjón höfð af öllu því er þar hefur komið fram kemur í ljós að svo virðist sem ENGINN Bagglýtingur sje til NEMA VJER og í mesta lagi þrír aðrir Bagglýtingar. Mjög líklegt er að þrír sje of há tala og að rjett tala sje EINN FYRIR UTAN OSS. Að auki eru einhverjar líkur á að a.m.k. EINHVER HLUTI RITSTJÓRNAR sje til. Má þar nefna Myglar en því miður virðist sem tímavjelartilraunir hans hafi e.t.v. farið eitthvað úrskeiðis.

Nokkuð lengi hefur verið vitað að Glúmur er NÆR ALLIR gestirnir hjer. Hjer má sjá ÓTVÍRÆÐ sönnunargögn:

http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=7157

Í eftirfarandi þræði komu hins vegar fram AFAR merkar upplýsingar:

http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=7193

Skabbi, er alkunna er að er ávallt heiðarlegur og lýgur eigi, minnti á að Glúmur væri framsóknarmaður. Eftirfarandi upplýsingar Bjargmundar frá Keppum varpa síðan ALGJÖRLEGA nýju ljósi á málið:

Samsærið er dýpra en þú heldur, Skabbi minn. Framsóknarflokkurinn er nefnilega ekki heldur til. Fjölmiðlarnir hafa bara komið sér saman um að ljúga því að fólki að til sé eitthvað í líkingu við þennan flokk.

Það útskýrir afhverju hann hefur enga stefnu, ekkert fylgi, enga flokksmeðlimi og engar áþreifanlegar sannanir fyrir tilvist hans. Síðan er bætt gráu ofan á svart með því að segja fólki að þetta sitji í ríkisstjórn!

Af þessu er auðvelt að sjá að Glúmur getur ÞÁ OG ÞVÍ AÐEINS VERIÐ TIL að Framsóknarflokkurinn SJE TIL. Svo er hins vegar EIGI og því er Glúmur EIGI TIL. Af þessu má draga athyglisverða ályktun:

NÁNAST ENGIR BAGGLÝTINGAR ERU TIL !

Glúmur er (sje hægt að nota það orð nú er þessar upplýsingar hafa verið dregnar fram í dagsljósið) NÆR ALLIR GESTIRNIR HJER, líkt og áður kom fram. Hann er hins vegar EKKI TIL því Framsóknarflokkurinn er EKKI TIL og hefur ALDREI VERIÐ TIL. Ljóst er því að Framsóknarflokkurinn er GRUNDVÖLLUR hinnar baggalútísku tilveru. Sje hann til eru gestirnir hjer (eða a.m.k. Glúmur) til en ANNARS EKKI. Og þessi grundvöllur tilverunnar er því miður EIGI TIL. Hefur heimsmynd vor því GJÖRBREYST frá því sem var fyrir skömmu. Fjöldi þeirra Bagglýtinga er til eru er teljandi á FINGRUM ANNARRAR HANDAR.

Stóra spurningin er næst þarf að rannsaka er HVERJIR þeir Bagglýtingar er eigi eru til eru. Afar fullkomið gerfigreindarforrit eða eitthvað annað ? Rannsóknir munu brátt hefjast á því máli. Án efa munu ÓVINIR RÍKISINS gera ALLT til að hindra þá rannsókn og hindra að SANNLEIKURINN komi fram.

‹Hverfur ofan í kjarnorkuvopnahelt neðanjarðarbyrgi forsetaembættisins og heldur áfram rannsóknum á samsærum›

   (27 af 102)  
3/12/05 06:00

sphinxx

Þar sem allir eru Glúmur og Glúmur eigi til nema Framsókn sé í sókn og þá flokkur í raun og veru.
Jafnvel má líta svo á að Bagglýtingar séu í raun allir Glúmur nema þá forseti vor því Glúmur myndi vera hann, og ef að Vlad er Vlad en ekki Glúmur má þá kannski draga þá ályktun að Vlad sé Glúmur en Bagglýtingar alteregó og fjölklofnir persónuleikar Glúms.

3/12/05 06:00

Vladimir Fuckov

En sje Glúmur Glúmur en eigi eigi Glúmur og vjer vjer en eigi eigi vjer og sama gildi um 1-3 aðra Bagglýtinga nema hvað þeir Bagglýtingar eru þeir sjálfir en eigi vjer sjálfir er eigi erum Ég Sjálfur heldur vjer sjálfir þar eð vjer vísum aldrei til vor með orðinu ég eða jeg heldur einungis vjer þá er augljóst að Glúmur getur einungis verið Glúmur en eigi eigi Glúmur sje Framsóknarflokkurinn er eigi er til til er þó gengur eigi upp þar eð hann er eigi til og getur því tilvist eða tilvistarleysi Framsóknarflokksins augljóslega eigi verið annað en samsæri á vegum Glúms er þá er til en eigi eigi til. Þetta er hins vegar alltof einföld og augljós skýring fyrir smekk vorn [Reynir að finna flóknari og líklegri skýringu].

3/12/05 06:00

Upprifinn

Baggalútur er til.
Gestapó er til.
Framsóknar flokkurinn er ekki til.
Þá getur engin gestapói verið framsóknarmaður.
Þá getur Glúmur ekki verið framsóknarmaður.
og engin framsóknar maður getur verið Glúmur.
Glúmur er ekki til.

3/12/05 06:00

Albert Yggarz

Kaktuz minn einasti, hvað verður þá um Myglar og Fyrirspurnirnar?

3/12/05 06:00

fagri

Oft getur komið sér vel að vera sljór. T.d. núna.

3/12/05 06:00

Bölverkur

Skyndilega fáum vjer oofuráhuga á heimspeki. Gott spjall.

3/12/05 06:00

Offari

Ég hef alltaf efast um tilvist mína. Nú hef ég fengið það staðfest að ég er ekki til.

3/12/05 06:00

blóðugt

[Hallar undir flatt]

3/12/05 06:01

Húmbaba

Hananú, þá þarf ég ekki að hugsa framar.

3/12/05 06:01

Hvæsi

Ókei ókei, nú ertu búinn að rugla mig Vlad !
Hvað eru margir í mat ?

[Hendir til pottum og eldhúsáhöldum]

3/12/05 06:01

feministi

Ég Feministi er til. Ég hef ótal lögregluskýrslur sem sanna það.

3/12/05 06:01

Golíat

Vladimír, þetta er allt misskilningur í yður. Þér eruð einn Glúmur - aðrir ekki - utan Glúmur sjálfur sem sem einnig er Glúmur.
Hvað varðar Framsóknarflokkinn þá er enginn Glúmur í honum. Vér hin sem ekki erum Glúmur erum framsóknarmenn, sum óafvitandi önnur meðvitað, þar á meðal vér sjálfir. Til að sanna þetta þarf ekki lögregluskýrslur, hins vegar getur dr Kári sýnt fram á þetta með óyggajndi hætti.

3/12/05 06:01

Haraldur Austmann

Ég er Glúmur.

3/12/05 06:02

Hakuchi

Tilvist okkar er því lygi, sönn lygi.

3/12/05 06:02

Lopi

Ég er félagi í Frammsóknarflokknum en ég er líka api.

3/12/05 07:00

Heiðglyrnir

Hmmmmmmmmmmmmmm...?..!..?..

3/12/05 07:02

Jóakim Aðalönd

Ég held að ég sé Glúmur...

Annars er ekki langt að bíða að Framsókn verði ekki til.

3/12/05 07:02

Vladimir Fuckov

Ætli sk. 'raunheimar' er eigi eru til hætti þá líka að vera til (ef eitthvað er eigi er til getur hætt að vera til) ? [Hrökklast aftur á bak og hrasar við]

3/12/05 08:00

Upprifinn

Lopi er greinilega ekki til og getur þar með ekki verið api.
apar eru þá ekki til eða hvað.

3/12/05 08:01

Nermal

Gæti ég verið Glúmur??? það var allaveganna ekki þannig síðast þegar ég gáði.

4/12/05 06:01

Glúmur

Jæææja Vladimir, þú ert þá loksins farinn að leggja saman tvo og tvo. Ég var satt að segja farinn að efast um að þú myndir nokkurntíma koma öllum púslunum saman.

Nú þarftu að taka ákvörðun um hvað þú ætlar að gera. Ætlarðu að bíta í súrt epli sannleikans og láta allt Gestapó eins og það leggur sig falla saman í hugafylgsnum þínum án minnstu vonar um að geta snúið hingað aftur? Eða ætlarðu að halda áfram að lifa í mjúkum vef blekkingarinnar?
Þegar öllu er á botninn hvolft, hvern varðar um hvað þú gerir í frítíma þínum og hverjar þínar hugrenningar eru, blekkingar eða ekki, Gestapó er eftir allt saman skelfilega skemmtilegur hugarburður, það skaðar engan að lofa því að þróast áfram - hlustaðu á þinn innri mann, þitt innra Gestapó.

5/12/05 04:02

hunandar

'Eg er ekki Glúmur né munum vér gerast Nemal pupplick enemy no 1. það er sko til en eins og Vladimir Fuckov minntist hjér svo ritavel þá er framsókn sjálfstæðis eða barasta f****g týkin tja hva er hægt að noh náði því þetta eru fjöllistarmenn og trúðar og gætu verið ágætir í einhverju Tyrknesku fjöleikahúsi að skemmta kóngum og fífflum en nú fynnst hundsskömminni ´hafa gengið ansi krappan línudans með það að hæla þessa vittilisinga með lönu trýnin upp í pontu semjandi sálma og vísur ég er ekki til og ég virðist að einhverjum ástæðum vera harðasti óvinur lýðræðisinns ef huu kalla á þetta lýð r æð i en ég er heldur ekki jafn heppin og Vlad að geta hoppað oní neðanjarðarholuna og horft á the telly tubbys með doritos og gos skál þið sem eruð ekki til lifi sannleikurinn ahhh alheimurinn er ekki til við erum bara öll með gerfigreind ahhh alheimurinn er bara baun rauð baun

10/12/05 02:01

Hvæsi

<Læðist inn og kemur sér fyrir í dimmu horni, tilbúinn að bregða næsta manni sem verður svo óheppinn að kíkja inn>

2/12/06 01:01

krossgata

[Böar Hvæsa]

3/12/07 09:01

krossgata

Já, einn af gleymdu þráðunum hans Hvæsa, þetta fer að hljóma eins og óhreinu börnin hennar Evu.

Vladimir Fuckov:
  • Fæðing hér: 20/8/03 21:21
  • Síðast á ferli: 23/8/23 21:21
  • Innlegg: 19773
Eðli:
Forseti Baggalútíu. Kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra og viðskiptaráðherra Baggalútíu. Æðstiklerkur Skipulagsstofnunar Hreintrúarflokksins. Eigandi sálar Ég sjálfs (eða hvernig sem það nafn fallbeygist). Rocket scientist. Stofnandi Nátthrafnasamtaka Baggalútíu (NHS-B). Erkilaumupúki.Flöt jörð, slétt föt, hrein trú !
Fræðasvið:
Rocket science, life, the universe and everything
Æviágrip:
Vjer fæddumst í Rússlandi, að líkindum seint á 19.öld eða snemma á síðustu öld en munum eigi hvenær, vorum of ungir er það gerðist til að muna eftir því. Snemma hófum vjer tilraunakenndar eldflaugasmíðar og vorum óvart næstum búnir að þurrka megnið af Síberíu út við tilraunageimskot í Tunguska. Þar vorum vjer þó heppnir þvi eigi komst hitinn og eldurinn í kóbalt vort. Síðar lukum vjer doktorsnámi í eldflaugaverkfræði og efna- og eðlisfræði kóbalts svo og í notkun tölva til stjórnunar á gjöreyðingarvopnum og flúðum að því loknu land til að stunda tilraunir á eigin vegum víðsvegar um heim. Seint á árinu 2003 urðu tímamót í rannsóknum vorum er vjer skruppum í svaðilför mikla til Rússlands og stálum þar gjöreyðingarvopni því er elipton nefnist. Er vopn þetta núna mikilvægur liður í því að tryggja stöðu Baggalútíu sem stórveldis og hefur því stöku sinnum verið beitt gegn óvinum ríkisins. Nýlega hófum vjer síðan umfangsmiklar rannsóknir á hagnýtingu plútóníums, einkum til hálkuvarna og götulýsingar, t.d. á Hellisheiði.