Fyrir nokkru birtum vjer hjer drótt erkilaumupúka. Í kjölfarið komumst vjer að því að þar var langt í frá rjett ort. Hjer er því endurbætt útgáfa. Jafnframt er hjer á ferðinni e.k. vísnagáta því fleira leynist hjer en laumupúkar. Skýringar verða e.t.v. birtar síðar.
Sumra púka sómi
sjest í mungát bestu
Erkipúka orka
eftir þræði læðist
Herti skatna skort á
skemmtun undir grundu
Meira glaða gera
gesti drykkir þykkir
Nú er þetta eiginlega orðið Laumupúkadrótt III, vjer endurbættum þetta örlítið [Laumupúkast burt og vonar að þessum hringlandahætti sje þar með lokið].
Eigi hefur neinn áttað sig á um hvað er ort. Munum vjer því e.t.v. fljótlega endurbirta kveðskap þennan í vísnagátuþræðinum.