Nauðsynlegt er að efnagreina nákvæmlega jarðveginn þar sem flugskeytum og eldflaugum er skotið á loft
Um þessi áramót kom með óvenju skýrum hætti fram nauðsyn þeirra stöðugu hernaðar- og leyniþjónustuaðgerða er allt frá stofnun Baggalútíu hafa staðið yfir gegn óvinum ríkisins. Hefur þetta einmitt venjulega komið sjerlega greinilega fram um áramót. Að þessu sinni var gerð óvenju ósvífin tilraun til að sprengja forsetaembætti Baggalútíu í loft upp og voru þetta önnur áramótin í röð þar sem slíkt gerist. Var þetta núna gert með því að breyta efnasamsetningu jarðvegsins þar sem embættið skaut upp flugskeytum og eldflaugum í gærkvöldi þannig að viðnámið milli jarðvegsins og eldflaugar nokkurrar varð svo mikið að eldflaug þessi komst eigi á loft heldur sprakk í loft upp á jörðu niðri en eldflaugar þessarar gerðar eru þeirrar náttúru að neðsti hluti þeirra er neðanjarðar er þeim er skotið á loft. Þess ber að geta að sem betur fer urðu eigi slys á viðstöddum enda neðanjarðarbyrgi forsetaembættisins kjarnorkuvopnaheld.
Það sem af þessu má læra er að kanna ávallt nákvæmlega alla eiginleika jarðvegsins þar sem eldflaugum og flugskeytum er skotið á loft svo tryggt sje að það er skjóta á upp komist á loft. Sjer í lagi er mikilvægt að ganga úr skugga um að óvinir ríkisins hafi eigi laumað lími eða skyldum efnum í jarðveginn.
Í kjölfar atviks þessa hafa farið fram umfangsmiklar rannsóknir á hver sökudólgurinn kunni að vera og leikur grunur á að um sje að ræða útlæga óvini ríkisins með aðsetur í eldflaugaverksmiðjum í Kína. Notum vjer hjer með tækifærið og skorum á alla Bagglýtinga að sýna algjöra samstöðu gegn öflum þeim er sýna Baggalýtingum þá ósvífni er aðgerðir sem þessar bera með sjer. Ljóst er að enginn er óhultur. Er í framhaldi af þessu alveg ljóst að nýja árið mun eigi síður en árið 2005 einkennast af stöðugri baráttu og hernaðaraðgerðum gegn óvinum baggalútíska heimsveldisins.
Gleðilegt ár og skál !
Hátækniherdeildir mínar munu gereyða þessu drasli sem þið kallið varnir!
Yður láðist gjörsamlega að blanda kóbalti og tímavjelum í hugaróra yðar, hæstvirti meinti forseti.
Það er eins gott að Vladimir er forseti. Annars hefði þetta getað farið illa.
Þessar sprengingar eru komnar útyfir allt velsæmi og hef ég tekið mér það Bessa leyfi að ráða sérsveit í að eyða þessari óáran stax áður en þeim verður dreift til almúgans. Bið ykkur að fara ei leynt með að fyrsta viðvörun var gefin og stakk sveitin sér níður í sveitinni þ.e. hjá Hveraverunum austur sem sjá mátti í fréttum í gær. Næst verður víðar borið niður og ekki hætt fyrr en ófögnuðurinn verður alveg kveðin niður, eða aðeins gerður með góðu eftirliti landsfeðra og efnafræðinga Baggalútíu. Pronto
Ósegjanlega gleður það mig að foringi vor skuli heill á húfi eftir tilræði þetta. Hér eftir verður aðeins sett germanskt fírverk í minn jarðveg.
Hmmmm.
Ég heyrði að byrjað væri nú þegar að Lauma inn í landið enn stærri skammti af vopnum og sprengjum fyrir aðra eins sprengingu næstu áramót.
<Laumast út>
Rjett er það, auk þess var óvenju mikið um sprengingar í gærkvöldi af einhverjum ástæðum.