Illa auglýst
Rjett áðan veittum vjer því athygli að við athugasemd vora við fjelagsrit nokkurt var komið táknið 'X' þar sem ekkert hafði verið áður. Sökum eðlislægrar forvitni fórum vjer strax með píluna yfir þetta. Er enginn texti birtist prófuðum vjer að smella á X-ið. Allt hvarf af skjánum en birtist svo strax aftur. Allt virtist með felldu þar til vjer veittum því athygli að athugasemd vor er nefnd var í byrjun fjelagsritsins var horfin.
Um leið og vjer fögnum því að nú skuli loksins vera komin leið til að eyða athugasemdum (eða sem er mikilvægara: Leiðrjetta þær með því að eyða þeim og setja svo inn leiðrjetta útgáfu) látum vjer hjer með formlega í ljós óánægju með hvað þessi stórhættulegi nýi 'fítus' var illa auglýstur. Gefum vjer þessu því 2 stjörnur: 0 fyrir kynningu en 4 fyrir að þetta er löngu tímabært. Meðatalið af því er þær 2 stjörnur er vjer gefum hjer.
Ég er algjörlega sammála þessu mati þínu, enda lenti ég í nákvæmlega því sama. Þetta var eins og að henda handsprengju niður í apagreni. Auðvitað fór það svo að allir forvitnu aparnir prófuðu að taka pinnann út, með skelfilegum afleiðingum.
Þökk sé þinni athugasemd, Valdimir, þá tókst mér að standast freistinguna. Athugasemd mín stendur því eins og stafur á bók.
Féll fyrir þessu. Athugasemdin mín var þó ekki löng, svo allt reddaðist á endanum.
Enter segir að ég eigi að læra að steinhalda kjafti eins og Auðun Georg. Annars x'ar hann mig varanlega :(
Vissulega augljóst, hverjum manni, sem hefur prufað windows, ætti að vera ljóst að ef ýtt er á x í efra hægra horni, þá hverfur það sem var inn í þeim ramma sem umrætt x var í.
-
X-Gvendur 2015.
Hafðu það gott Vladimir [Ljómar upp í sægrænum ljóma kóbaltbætts plútóns]