Óvinur Baggalúts númer 1 á flótta
04.12.2003
Vér erum komnir í heilagt stríð við Hafþór Hübner og er leynieyjan hans eigi lengur til. Að gefnu tilefni vegna dagbókarskrifa hans viljum vér hins vegar taka skýrt fram að öfugt við það sem óvinur vor vill halda fram var eigi um tilræði að ræða þar eð vér gengum úr skugga um að hann væri eigi á eyjunni. Svona aðilar geta nefnilega verið hin besta skemmtun ef þess er gætt að halda nægjanlega aftur af þeim og því var tilgangurinn að tryggja að eyjan yrði eigi lengur til en eigi að tryggja að Herr Hübner yrði eigi lengur til.