Við lestur nýlegra félagsrita rann upp fyrir oss að afar sjaldan hefur verið ort um ónefnt, mikilvægt fyrirbæri er mikið kemur við sögu hér á Gestapó. Er það óneitanlega afar einkennilegt og gerum vér hér með tilraun til að bæta úr því.
Eyðir öllum tárum
eykur stórum mátt
Nefnt er eftir árum
alveg fagurblátt
Fæst í fögrum pokum
fæðir andann háan.
Gerir guma' að lokum
gríðarlega bláan.
Vel kveðið forseti... það sem þú yrkir um hefur komið fyrir í vísum frá mér, en ekki af slíkri tærri snilld og hér... Salút