Eigi svíkur Bretinn
Þar eð vér teljumst til aðdáenda bresks sjónvarpsefnis og þá eigi síst breskra gamanþátta erum vér í góðu skapi er vér ritum þessi orð. Óvenju langt er síðan vér höfum séð virkilega góða breska gamanþætti í sjónvarpinu en vér minnumst margra slíkra á árum áður, má þar nefna 'Allo 'Allo, Yes Minister og Yes Prime Minister, Blackadder, Jeeves and Wooster o.m.fl.
Í kvöld sáum vér 2. þáttinn af Fortysomething á RÚV en fyrsti þátturinn fyrir viku hafði lofað góðu. Og sem betur fer urðum vér eigi fyrir vonbrigðum. Hugh Laurie, er var í hlutverki spjátrungsins Bertrams Woosters í Jeeves and Wooster, sýnir þarna kunnugleg tilþrif en svo eru þarna nokkuð undarlegir vinnufélagar, stórundarlegir nágrannar, kynlífsóður sonur og annar sonur er aldrei er í skólanum, lesbískur vinnuveitandi eiginkonunnar og vænn skammtur af allskyns misskilningi og blekkingum. Vonandi þynnast þættir þessir eigi út er á líður.
Gefum vér þeim tveim þáttum er búnir eru fjórar stjörnur og vonum að framhaldið verði í sama dúr.
Sá hluta af þessu - nafnið var reyndar turn-off - hélt fyrst þetta væri framhald af þeirri filmusóun er hét thirty-something ! En þessir eru alger snilld !