Svíar niðurlægðir á Laugardalsvelli
Hvað í brennisteinsvetnislyktandi branduglum á það að þýða að eftir flestalla knattspyrnuleiki hefja ávallt sömu niðurrifssinnuðu og nöldursjúku nefaparnir upp skerandi raust sína þrátt fyrir stórglæsilegan árangur ? Eftir stórkostlegan árangur gegn Svíum í kvöld er auðvelt að sjá fyrir að þetta muni gerast enn og aftur því ávallt finna þessir niðurrifsseggir eitthvað neikvætt til að benda á, í þetta sinn eflaust að sigurinn hafi eigi verið nógu stór. Já, sigurinn segjum vér því Svíar eru 32 sinnum fleiri en Íslendingar og unnu Íslendingar því glæsilegan 32-4 sigur sé höfðatölureglunni beitt á réttan hátt. Nú kann einhverjum að koma þetta spánskt fyrir sjónir en vér blásum á slíka vitleysu. Svíar eru 32 sinnum fleiri en Íslendingar, þar eru því um 32 sinnum fleiri knattspyrnumenn og að sama skapi margfalt fleiri leikmenn í heimsklassa. Eigi Íslendingar einn slíkan eiga Svíar 32. Þessu til viðbótar eru 90 mínútur fáránlega langur tími fyrir einn leik á þessum tímum hraða og streitu. Miklu eðlilegra er að líta á þetta sem upphitun í fyrri hálfleik en að sjálfur leikurinn hafi verið í seinni hálfleik (stundum er þetta reyndar öfugt). Þá skoruðu Svíar ekki eitt einasta mark allan leikinn og niðurlæging þeirra algjör.
Að lokum viljum vér gagnrýna annars ágæta ritstjórn fyrir að setja örgustu öfugmæli á borð við "jafnvel þó við getum ekki neitt" inn í alþekkt stuðningslag. Ekkert er fjær sanni. Ussussuss !
Var ekki heldur búin að gera mér grein fyrir þessu. Til hamingju öll sömul ! Dettum í það og upphefjum húliganalæti. Skál !
Ég ætla að fá mér drykki í tilefni þessa stórsigurs, þakka þér fyrir Vladimir, þú reddaðir deginum ...Salút
Það var náttúrulega löngu búið að fara yfir þetta sama mál. Og vegna þeirrar umræðu var ég löngu búinn að gera mér grein fyrir þessari niðurstöðu. Reyndar var ég ekki alveg viss hvort staðan hefði verið 32-4 eða 63-4. Ein af reglunum sem áður hafði verið rætt um, snérist um að bæta einum við báðar tölurnar, margfalda svo með margföldunarmismun þjóðanna (sem gæfi (1+1)*32 á móti (4+1)*1.) og að endingu draga þennan eina frá.
Semsagt Ísland : ((1+1)*32)-1 Svíþjóð : ((1+4)*1)-1
Ég fékk nú reyndar út að við hefðum unnið 8-1
en þetta er svosem ekkert verra.
Kemur líka eins út á endanum.
(290.000/8,986,400) * 4 = 0,129...
margföldum svo þessa tölu með 8 (til þess að komast sem næst einum) og gerum slíkt hið sama með mark íslendinga.
Þá fáum við út 8-1.
En ef þið prófið svo að margfalda þetta með 4 til þess að halda markfjölda svía réttum, þá koma út 64 mörk hjá íslendingum, sem er það sama og Limbri fékk út.
Ég verð nú bara að viðurkenna, að ég skil ekki þessar tölur allar. Enda er ég bara ólærður skrefill!
Neisko, félagsrit forseta um íþróttir.
Allt er nú til.
Hann finnur mig varla hérna ?
Af hverju er Hvæsi að fela sig út um allan Baggalút? Gerðirðu eitthvað af þér Hvæsi?
[Klórar sér í höfðinu]