Aumingjans blanki bankinn minn
Ég skrapp núna um daginn í bankann. Það er nú ekkert sem er í frásögur færandi. Þar sem ég vinn frá 8 - 16 þá fór ég eftir þann tíma. Þegar viðskipti mín stóðu sem hæst tjáði gjaldkerinn mér að ég þyrfti að borga 190 kr í þjónustugjald, vegna þess að klukkann væri meira en fjögur. Þetta þykir mér vera undarlegt, já og frekar ósanngjarnt. Fjandi margir eru að vinna milli 9 og 16 sem er venjulegur oppninartími bankana. Þetta væri svipað og að Bónus myndi hækka verðið um helgar, já eða að bensínið myndi hækka um tvær krónur líterinn eftir átta. Ég veit ekki hvort allir bankarnir gera þetta, en allaveganna gerir Kaupþing þetta......
Og léstu bara taka þig í þurrt og ósmurt?
Nei, í alvöru. Þetta þykir mér algjör della!
Ég hef nú aldrei heyrt fyrr um þetta gjald. Blessaður segðu skilið við þennan skítabanka.
Þeir hafa gert þetta í mörg ár. Mín görn er smurð af öðrum banka. <Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann>
Ef bankarnir taka ekki eftir fjögur gjald þá gera þeir bara annað. Þetta eru allt skítastofnanir!
Þeir taka líka talningargjald af krakkagreyjunum sem koma með sparibaukinn til að leggja inn á skírnar-reikninginn.
Ég er alveg sammála með að bankarnir eru ósiðlegir hvað þetta varðar. Hinsvegar er ég sáttur við mitt bankaútibú því starfsfólkið þar hætti að rukka talningargjaldið fyrir að telja úr sparibaukum barnanna að eigin frumkvæði, þeim fannst það einfaldlega of siðlaust.
Síðan forðast ég algerlega að fara í banka eftir klukkan 4, einmitt út af þessu hálfvitagjaldi. Nota bara heimabankann, hann er þó ódýrari, þori ekki að segja ókeypis.... [Dæsir þungt]
Já, notaðu endilega heimabankann. Hann er mjög góður. [Glottir eins og fífl]