Já hákarlalýsið er:
Loksins komið í luktina,
lengi máttum bíða.
Eina skorti ótuktina
alla þurfti´ að svíða.
Þér ættuð að koma yður upp rakasperru við neðanverðan framheila og heilabörk (prefrontal cortex) til að kondensinn hafi ekki þessi áhrif á vitrænar aðgerðir yðar. Þetta heilasvæði stjórnar nefnilega hegðun yðar með tilvísun í dómgreind og forsjálni
Átti þetta ekki örugglega við mig?
Ég fór rakleiðis og keypti eitt stykki. Nú þarf ég túrban svo allir sjái ekki galla mína vegna stærðar sperrunnar.
Þetta er nú frekar þunnt í roðinu... En mér líst vel á tillögu Hr. Andersen um rakavarnarlag. Ég mæli með þolplastinu frá Plastprent. Ekki láta blekkjast og kaupa byggingarplast þó það sé ódýrara. Það brotnar niður á örfáum árum.
Ég fékk nú skömm í hattinn fyrir samskonar félagsrit fyrir margt löngu. Ég tók til mín aðfærslurnar og fór heim og skammaðist mín. Hef haft þær "gáfulegri" síðan.
Kannski maður fari að koma með nýtt...