— GESTAPÓ —
Kondensatorinn
Heiðursgestur.
Dagbók - 3/12/05
Beint í mark

Margt gera menn sér til skemmtunar en þetta er kannski dálítið öfgakennt.

Dag einn er ég var við vinnu mína stökk einn starfsfélaganna að útvarpstækinu og skrúfaði það á mesta styrk. Mér varð hverft við því hvorki voru það fagrar rímur né Baggalútur á dagskránni.
Nei það voru íþróttir.
Útvarpsmaðurinn sá er hækkað hafði uppveðraðist allur og belgdist út í einhverskonar rembingi eins og hani á haug þegar útvarpsþulurinn byrjaði að hrópa af æsingi að einn maður hefði kastað einhverju til annars manns sem kastaði því til annars sem missti það svo. Svona gekk þetta um stund þar til útvarpsþulurinn var orðinn móður og másandi. Skyndilega rak hann upp mikið gól og öskraði ,,Hann skítur beint í markið”. Þetta fannst mér nú hálf óhugnanlegt sér í lagi þar sem starfsfélagi minn fagnaði ákaft þessu framtaki og sperrtist enn meir. Þetta endurtók sig nokkrum sinnum og markvörðurinn áreiðanlega verið frekar óræstilegur þegar yfir lauk.

   (10 af 11)  
3/12/05 09:02

Günther Zimmermann

Var ,,markið" einfalt að gerð eða búið vatnsræstitækni?

3/12/05 09:02

Ferrari

Þetta hefur verið ansi subbulegt.vonandi að þetta hafi verið seint nm kvöld því þetta er klárlega ekki við hæfi barna og viðkvæmra

3/12/05 10:00

Nermal

Held að það sé best að grípa til enskunar í þessu tilfelli og segja bara "Shit happens"

3/12/05 10:01

Dexxa

hahahahahaha...

3/12/05 11:00

Hvæsi

Hvurslags er þetta, ljótt að heyra.

Ég heyrði einmitt svona lýsingu einusinni, gegn vilja mínum og það var einmitt.. "já, einn gefur á annan og annar gefur á hinn og það er næstavíst að þetta er æsispennandi" Svo gera þeir ekki annað en að skíta í markið hjá hvor öðrum.

3/12/05 11:01

Kondensatorinn

Þetta er bara ónáttúra og sóðaskapur af verstu gerð.

4/12/05 13:01

hunandar

SORRY EN SMÁ INNLEGG HÉR
TUNGULYPUR TÖNGLAST ÞEIM TVEIMUR TUNGUM SLEIPUR! EF EKKI MEIR TUÐA OG VÆL TRYLLIR OLLUM TUNGUM ÞEIM OG ÞEYTIR SÆRINGAR SÁLMA TRYLLTIST TUNGUSLYPI RÆNINGINN OG SEGIR RONYA LITLA RÆNINGJARDÓTTIR HÚN BARA RUDDIST ÞAR OG RÆNDI OG STAL KANSKI Ó EY OF MIKIÐ I'LL BE BACK SUCKER'S

Kondensatorinn:
  • Fæðing hér: 7/9/05 22:43
  • Síðast á ferli: 26/11/18 09:19
  • Innlegg: 1315
Fræðasvið:
Rækta mörur í tómstundum.
Æviágrip:
Var lautinant hjá Nemo skipstjóra um hríð. Var ritstola eftir æsilegan flótta úr Bermúdaþríhyrningnum en komst við illan leik til Færeyja. Hélt síðan til Baggalútíu og leikur þar lausum hala.