Í dag hafði ég ekkert að gera nema að hreinsa upp eftir veikindi dóttur minnar. Ég tek því enga ábyrgð á félagsritum mínum í dag.
Ég tók mér frí frá hreinsun á efnaúrgangi til að ferðast eftir Google. Þar komst ég að óhugnalegum staðreyndum. Í Finnlandi er heil hersveit Aula. Ég tel því augljóst að Aulinn sé njósnari frá Finnmörku og fel njósnavarnarliðum Baggalúts þessa tengla því til sönnunar.
Þessi gaur á konu sem heitir Auli
http://www.apulanta.fi/matti/index_en.html
Og þessar konur eru allar Aular...
http://www.elintarvikevirasto.fi/index.html?page=2929
http://www.kristiina.kaapeli.fi/henkilot.htm
http://www.skr.fi/tl_hakulinen.shtm
http://www.proartists.com/Auli_Jarvela/jarvela_cv_.html
http://www.julkaisut.fi/arjapaakkanen/media/Naisehdokkaat/Kemppainen%20Auli.JPG
Fleirri sönnunargögn má finna hér:
http://images.google.com/images?svnum=10&hl=en&lr=&client=firefox-a&rls=org.mozilla%3Aen-US%3Aofficial&q=auli+-skiing&btnG=Search
Þetta er án efa höfuðstöðvar skíðahersveitar Aulanna:
http://www.shikhar.com/skiing.htm
Og hér vatnið þar sem upplýsingafundir eru haldnir:
http://www.r-mercer.demon.co.uk/eascoul.htm
Þótti rétt að láta vita af þessu.
Hundslappadrífa, Besservisser.
Þetta jaðrar við einelti á aulum og myndin holí bólí. Þakkaðu fyrir ef Aulinn fer ekki í meyðmyndamál við þig.
Hér er há-alvarlegt mál á ferðinni, var búið að láta Forzetan vita af þessu.
Án gríns, það verður að hanna svona upplýsingabanka fyrir undarlegar staðreyndir um Finnland... eða ættum við að segja aulalegar?
Finnland er greinilega að skipa sér í fremstu röð meðal Færeyja sem hættulegustu þjóðfélög veraldar.
Ahh, svo Svíarnir eru partur af samsærinu. Datt þetta í hug, þessi sænski kokkur í Prúðuleikunum hefur alltaf verið dularfullur með meiru.
[Starir þegandi útí loftið, setur upp sætan svip]
Ég er saklaus...
[Brosir sætasta brosi sem sést hefur]
Það er greinilegt að þessir helvítis Skandinavar allir saman eru með samsæri gegn okkur. Við verðum að útrýma þeim í eitt skipti fyrir öll! [Býr til innrásaráætlun]
Minnir Don á að bíða framyfir áramót með Svíþjóð, því Sloppur er að fara í njósnaferð.
Jú Finnmörk liggja í dölunum í Svíþjóð. ég hef góglað fram áð hér á landi búa 212, Aular þar af einn er karlmaður. hversu margir aular finnast hjá grönnum okkar í austri veit ég ekki. kunnáttamín ´tungu þeirra er lélegri enn á ástljúfa ylhíra móðurmálinu og er þá mikið sagt.