Karlar passið ykkur.
Nú er mikið af bílum á leið í miðbæinn og er reiknað með að talsvert verði um smáárekstra og ljósastauraklístur, þar sem bílstjórarnir eru langflestir af kvenkyninu. Einnig má búast við því að öll bílastæði verði hálffull þó bílarnir séu færri en stæðin, farið varlega nálægt bílastæðum. Einnig má búast við að í hringtorgum verði ekki hægt að komast leiðar sinna því konur komast ekki út úr hringtorgunum. Þá er mælt með að útvarpsstöðvar spili ekki lög eftir Madonnu eða aðrar konur sem gætu æst upp kvenpeninginn.
Sæmi Karlremba (aðeins í dag þó).
Einnig má búast við að auð svæði er eigi eru bílastæði fyllist líka [Horfir út um gluggann á bílaflóð á frekar óvenjulegum stöðum].
Hehe... ég vil nú reyndar benda á að í langflestum tilfellum bílslysa (og einnig þeim alvarlegustu) eru karlmenn bílstjórar.
Hinsvegar verð ég að viðurkenna að margar konur eru alveg hreint út sagt hræðilegar að leggja!
Já ég hef séð þær.. og ég hef skilið alla brandarana um konur og bíla.
Ég er svo blessunarlega heppin að vera góð í að leggja bíl.. keyri ekki yfir línuna eða á næsta staur.. hef aldrei keyrt á neitt hvað þá bakkað á eitthvað.
Mig minnir að þetta hafi eitthvað að gera með magn af einhverju efni (sem ég man ekki hvað heitir... ekki testesterón þó) sem er í meira magni í líkama karla en kvenna (og hefur einhver áhrif á t.d. það að hitta í stæði)
Sumar konur virðast hafa meira af þessu efni í líkamanum en aðrar konur, og geta þá lagt í stæði.
Sumir karlmenn hafa minna af því... og eru því lélegir.
Annars er þetta nú sjálfsagt líka að miklu leiti bara æfing.
Við karlmenn þurfum jú alltaf að miða í göt [starir þegjandi út í loftið]
Efnið sem þú vísar í kæra Tigra er einfaldlega að karlmenn eiga í flestum tilvikum auðveldara með að átta sig á fjarlægðum og búa til mynd í þrívídd í huganum.
En svo eru sumir karlar konur í hjarta sér og ættu alls ekki að fá að koma nálægt bílum neitt frekar en konurnar...
Hér má sjá mynd af því hvernig bílum var lagt í dag:
http://www.sis.edu.hk/School%20Features/Tsunami/Links/pp.jpg
Alltaf gaman að vera í þessum gír, það hleypir fólki svo skemmtilega upp.
Þetta hefði getað verið enn skemmtilegra ef Smábaggi væri með...